48. fundur
velferðarnefndar á 144. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 15. apríl 2015 kl. 09:00


Mættir:

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (SII) formaður, kl. 09:00
Elsa Lára Arnardóttir (ELA) 1. varaformaður, kl. 09:00
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 09:00
Brynjar Níelsson (BN), kl. 09:00
Guðbjartur Hannesson (GuðbH), kl. 09:00
Helgi Hrafn Gunnarsson (HHG), kl. 09:00
Páll Jóhann Pálsson (PJP), kl. 09:00
Ragnheiður Ríkharðsdóttir (RR), kl. 10:25
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 09:00

Björt Ólafsdóttir boðaði forföll. Ragnheiður Ríkharðsdóttir boðaði að hún yrði sein.

Nefndarritari: Gunnlaugur Helgason

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:02
Fundargerð 47. fundar var samþykkt.

2) 402. mál - slysatryggingar almannatrygginga Kl. 09:03
Á fund nefndarinnar komu Ágúst Þór Sigurðsson, Guðlín Steinsdóttir og Hildur Sverrisdóttir Röed frá velferðarráðuneyti.

3) 322. mál - almannatryggingar Kl. 09:44
Á fund nefndarinnar komu Ágúst Þór Sigurðsson og Hildur Sverrisdóttir Röed frá velferðarráðuneyti.

4) Önnur mál Kl. 12:02
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 12:02