18. fundur
velferðarnefndar á 148. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 5. mars 2018
kl. 09:50
Mættir:
Halldóra Mogensen (HallM) formaður, kl. 09:50Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn) 1. varaformaður, kl. 09:50
Ásmundur Friðriksson (ÁsF) 2. varaformaður, kl. 09:50
Andrés Ingi Jónsson (AIJ), kl. 09:50
Anna Kolbrún Árnadóttir (AKÁ), kl. 09:50
Guðjón S. Brjánsson (GBr), kl. 10:30
Guðmundur Ingi Kristinsson (GIK), kl. 09:50
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 09:50
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:50
Ásmundur Friðriksson vék af fundi kl. 10:11. Vilhjálmur Árnason vék af fundi kl. 10:40.
Nefndarritari: Kolbrún Birna Árdal
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 09:50
Fundargerð 17. fundar var samþykkt.
2) 178. mál - heilbrigðisþjónusta Kl. 09:50
Ákveðið var að senda málið til umsagnar til 3. apríl nk. Þá var ákveðið að Vilhjálmur Árnason verði framsögumaður málsins.
3) 238. mál - barnalög Kl. 09:50
Ákveðið var að senda málið til umsagnar til 3. apríl nk.
4) 26. mál - þjónusta við fatlað fólk með miklar stuðningsþarfir Kl. 09:55
Nefndin ræddi málið.
5) 27. mál - félagsþjónusta sveitarfélaga Kl. 09:55
Nefndin ræddi málið.
6) Önnur mál Kl. 11:00
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 11:00