53. fundur
velferðarnefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 18. mars 2020 kl. 09:00

Mætt:

Helga Vala Helgadóttir (HVH) formaður, kl. 09:00
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn) 1. varaformaður, kl. 09:00
Ásmundur Friðriksson (ÁsF) 2. varaformaður, kl. 09:00
Anna Kolbrún Árnadóttir (AKÁ), kl. 09:00
Guðmundur Ingi Kristinsson (GIK), kl. 09:00
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 09:00
Halldóra Mogensen (HallM), kl. 09:00
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 09:00
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM), kl. 09:00
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:00

Nefndarritarar:
Arnar Kári Axelsson
Kolbrún Birna Árdal

Anna Kolbrún Árnadóttir og Ásmundur Friðriksson voru tengd fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 12. mars sl.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:00
Frestað.

2) 664. mál - atvinnuleysistryggingar og Ábyrgðasjóður launa Kl. 09:00
09:00 Á fundi með nefndinni voru Ragnhildur Þrastardóttir frá Landssamtökum íslenskra stúdenta og Jóna Þórey Pétursdóttir frá Stúdentaráði Háskóla Íslands. Fjölluðu þær um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

09:30 Á fundi með nefndinni voru Jón Þór Þorvaldsson, Guðmundur Már Þorvarðarson og Sara Hlín Sigurðardóttir frá Félagi íslenskra atvinnuflugmanna. Fjölluðu þau um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

10:05 Á fundi með nefndinni var Þórunn Sveinbjarnardóttir frá Bandalagi háskólamanna. Fjallaði hún um málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

10:20 Á fundi með nefndinni voru Árni Múli Jónasson og Bryndís Snæbjörnsdóttir frá Landssamtökunum Þroskahjálp. Fjölluðu þau um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

10:35 Á fundi með nefndinni voru Unnur Sverrisdóttir, Sverrir Berndsen, Vignir Hafþórsson og Gísli Davíð Karlsson frá Vinnumálastofnun. Þá voru á fundi nefndarinnar frá kl. 10:53, Gissur Pétursson, Bjarnheiður Gautadóttir, Klara Baldursdóttir Briem, Jón Þór Þorvaldsson og Eva Margrét Kristinsdóttir frá félagsmálaráðuneytinu. Fjölluðu þau um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) 667. mál - tímabundnar greiðslur vegna launa einstaklinga sem sæta sóttkví Kl. 09:00

4) Önnur mál Kl. 12:00
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 12:00