63. fundur
velferðarnefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í fjarfundur, mánudaginn 20. apríl 2020 kl. 09:00


Mætt:

Helga Vala Helgadóttir (HVH) formaður, kl. 09:00
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn) 1. varaformaður, kl. 09:00
Ásmundur Friðriksson (ÁsF) 2. varaformaður, kl. 09:00
Anna Kolbrún Árnadóttir (AKÁ), kl. 09:00
Guðmundur Ingi Kristinsson (GIK), kl. 09:00
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 09:00
Halldóra Mogensen (HallM), kl. 09:00
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 09:00
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM), kl. 09:00
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:00

Nefndarritarar:
Arnar Kári Axelsson
Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir

Fundurinn var fjarfundur og voru allir tengdir fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 12. mars sl.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:00
Frestað.

2) 666. mál - félagslegur viðbótarstuðningur við aldraða Kl. 09:00
09:00 Á fund nefndarinnar mætti Henný Hinz frá Alþýðusambandi Íslands. Fjallaði hún um málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

09:25 Á fund nefndarinnar mætti Tryggvi Þórhallssdon frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Fjallaði hann um málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

09:46 Á fund nefndarinnar mætti Vigdís Eva Líndal frá Persónuvernd. Fjallaði hún um málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

10:10 Á fund nefndarinnar mættu Þórir Ólafsson, Agla K. Smith og Herdís Gunnarsdóttr frá Tryggingastofnun Ríkisins. Fjölluðu þau um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

10:46 Á fund nefndarinnar mætti Sigurveig H. Sigurðardóttir frá Háskóla Íslands. Fjallaði hún um málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

3) Önnur mál Kl. 11:00
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:00