66. fundur
velferðarnefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í fjarfundur, miðvikudaginn 6. maí 2020 kl. 09:30


Mætt:

Helga Vala Helgadóttir (HVH) formaður, kl. 09:00
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn) 1. varaformaður, kl. 09:00
Ásmundur Friðriksson (ÁsF) 2. varaformaður, kl. 09:00
Anna Kolbrún Árnadóttir (AKÁ), kl. 09:00
Guðmundur Ingi Kristinsson (GIK), kl. 09:00
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 09:00
Halldóra Mogensen (HallM), kl. 09:00
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 09:00
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM), kl. 09:00
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:00

Nefndarritari: Arnar Kári Axelsson

Fundurinn var fjarfundur og voru allir tengdir fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 12. mars sl.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:00
Frestað.

2) 634. mál - siðferðileg gildi og forgangsröðun í heilbrigðisþjónustu Kl. 09:30
Á fund nefndarinnar mættu Birgir Jakobsson og Rögnvaldur G. Gunnarsson frá heilbrigðisráðuneytinu. Fjölluðu þeir um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) 666. mál - félagslegur viðbótarstuðningur við aldraða Kl. 10:25
Nefndin ræddi málið.

4) 723. mál - aðgerðir í þágu atvinnulausra vegna COVID-19 heimsfaraldursins Kl. 10:26
Á fund nefndarinnar mættu Erna Guðmundsdóttir og Þórunn Sveinbjarnardóttir frá BHM og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir frá BSRB. Fjölluðu þær um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

5) Önnur mál Kl. 10:50
Nefndin fór yfir stöðu mála og ræddi starfið framundan.

Fundi slitið kl. 11:00