21. fundur
velferðarnefndar á 143. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 18. desember 2013 kl. 09:05


Mættir:

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (SII) formaður, kl. 09:05
Þórunn Egilsdóttir (ÞórE) 1. varaformaður, kl. 09:05
Björt Ólafsdóttir (BjÓ) 2. varaformaður, kl. 09:33
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 09:05
Katrín Júlíusdóttir (KaJúl), kl. 09:05
Páll Jóhann Pálsson (PJP), kl. 09:05
Unnur Brá Konráðsdóttir (UBK), kl. 09:05

Elín Hirst og Lilja Rafney Magnúsdóttir voru fjarverandi.
Unnur Brá Konráðsdóttir vék af fundi kl. 10:10

Nefndarritari: Heimir Skarphéðinsson

Bókað:

1) 1. mál - fjárlög 2014 Kl. 09:05
Nefndin fjallaði um breytingartillögur meiri hluta fjárlaganefndar við frumvarp til fjárlaga ársins 2014 um aukið fé til heilbrigðismála. Á fund nefndarinnar komu Hrönn Ottósdóttir, Sveinn Magnússon og Dagný Brynjólfsdóttir frá velferðarráðuneyti.

2) 89. mál - mótun geðheilbrigðisstefnu og aðgerðaáætlunar Kl. 10:05
Formaður dreifði drögum að nefndaráliti og lagði til að málið yrði afgreitt sem var samþykkt.

Að nefndaráliti standa: SII, ÞórE, BjÓ, ÁsF, KaJúl, LRM, PJP og UBK.

3) Önnur mál Kl. 10:15
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:16