45. fundur
velferðarnefndar á 149. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 1. apríl 2019 kl. 09:30


Mættir:

Halldóra Mogensen (HallM) formaður, kl. 09:30
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn) 1. varaformaður, kl. 09:30
Ásmundur Friðriksson (ÁsF) 2. varaformaður, kl. 10:00
Andrés Ingi Jónsson (AIJ), kl. 09:30
Anna Kolbrún Árnadóttir (AKÁ), kl. 09:30
Guðjón S. Brjánsson (GBr), kl. 09:30
Guðmundur Ingi Kristinsson (GIK), kl. 09:45
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 10:10
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 09:30
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:50

Nefndarritari: Arnar Kári Axelsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:30
Dagskrárlið frestað.

2) 530. mál - breyting á ýmsum lögum til innleiðingar á tilskipun (ESB) 2015/1794 Kl. 09:30
Á fund nefndarinnar mættu Gunnar Þorbergur Gylfason, Jón Þór Þorvaldsson og Þór Hauksson Reykdal frá félagsmálaráðuneytinu. Fjölluðu þeir um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) 495. mál - persónuvernd og vinnsla persónuupplýsinga Kl. 09:45
Á fund nefndarinnar mættu Gunnar Þorbergur Gylfason, Jón Þór Þorvaldsson og Þór Hauksson Reykdal frá félagsmálaráðuneytinu. Fjölluðu þeir um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

4) Önnur mál Kl. 10:30
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:30