Málefni Dróma hf.

(1306211)
Efnahags- og viðskiptanefnd

Nefndarfundir

Dagsetning Fundur Bókun
11.09.2013 14. fundur efnahags- og viðskiptanefndar Málefni Dróma hf.
Á fund nefndarinnar komu Jane María Sigurðardóttir, Sveinn Margeirsson, Guðrún B. Vilhjálmsdóttir, Guðjón. G. Daníelsson og Ágústa Hauksdóttir frá hópnum Samstaða gegn Dróma. Gestirnir kynntu nefndinni starf hópsins og dæmi um starfhætti Dróma hf. Að því loknu svöruðu gestirnir spurningum nefndarmanna.
Nefndin ræddi málið.
28.06.2013 9. fundur efnahags- og viðskiptanefndar Málefni Dróma hf.
Á fund nefndarinnar komu Gísli Örn Kjartansson, Björk Sigurgísladóttir og Valdimar Gunnar Hjartarson frá Fjármálaeftirlitinu auk fulltrúa frá Dróma og ræddu málefni Dróma hf.