Ástandið í Tyrklandi
(1607031)
Utanríkismálanefnd
Nefndarfundir
Dagsetning | Fundur | Bókun |
---|---|---|
16.08.2016 | 56. fundur utanríkismálanefndar | Ástandið í Tyrklandi Nefndin ræddi ástandi í Tyrklandi. Steinunn Þóra Árnadóttir fór yfir afstöðu Vinstri grænna um mikilvægi þess að ályktað yrði um málið og áréttaði afstöðu sína vegna stöðunnar í Tyrklandi. Þeir nefndarmenn sem tjáðu sig voru sammála um alvarleika málsins, en töldu það hvorki í samræmi við þingsköp eða hefð að utanrikismálanefnd ályktaði. Málið ætti frekar heima á vettvangi Alþingis. |
02.08.2016 | 52. fundur utanríkismálanefndar | Ástandið í Tyrklandi Á fundinn komu Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra og Hannes Pétursson, Jörundur Valtýsson, og Jóhann Jóhannsson frá utanríkisráðuneyti. Dreift var minnisblaðinu Valdaránstilraun í Tyrklandi og staða mála dags. 2. ágúst 2016 til utanríkismálanefndar frá utanríkisráðherra. Gestirnir fóru yfir málið og svöruðu spurningum nefndarmanna. |