Tilskipun (ESB) nr. 2015/849 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka
(1610013)
Utanríkismálanefnd
Nefndarfundir
Dagsetning | Fundur | Bókun |
---|---|---|
10.12.2018 | 12. fundur utanríkismálanefndar | Tilskipun (ESB) nr. 2015/849 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka Á fund nefndarinnar komu Pétur Gunnarsson frá utanríkisráðuneyti og Hildur Dungal frá dómsmálaráðuneyti. Gestirnir kynntu minnisblað utanríkisráðherra þar sem óskað var heimildar nefndarinnar til að aflétta stjórnskipulegum fyrirvara af ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 249-252/2018 með lagafrumvarpi. Þá svöruðu gestirnir spurningum nefndarmanna. Nefndin tók ákvörðun um að veita slíka heimild í samræmi við a-lið 7. gr. reglna Alþingis um þinglega meðferð EES-mála. |
28.03.2017 | 10. fundur utanríkismálanefndar | Tilskipun (ESB) nr. 2015/849 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka Sjá bókun við dagskrárlið 2. |
08.03.2017 | 28. fundur efnahags- og viðskiptanefndar | Tilskipun (ESB) nr. 2015/849 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka Á fund nefndarinar komu Dagmar Sigurðardóttir og Hildur Dungal frá innanríkisráðuneyti og Steinlaug Högnadóttir frá utanríkisráðuneyti. |