Kosning formanns og 2. varaformanns

(1909087)
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd

Nefndarfundir

Dagsetning Fundur Bókun
16.09.2019 2. fundur stjórn­skip­unar- og eftirlitsnefndar Kosning formanns og 2. varaformanns
Líneik Anna Sævarsdóttir 1. varaformaður gerði grein fyrir því að láðst hafi að fá afstöðu allra nefndarmanna til tillögu um formanns- og varaformannskjör á 1. fundi nefndarinnar. Var því ákveðið að endurtaka kosningu til formanns og 2. varaformanns.

Jón Steindór Valdimarsson lagði til að kosið yrði um formann og 2. varaformann nefndarinnar og að Þórhildur Sunna Ævarsdóttir yrði formaður og Guðmundur Andri Thorsson 2. varaformaður. Var samþykkt að ganga til kosninga.
Guðmundur Andri Thorsson, Jón Steindór Valdimarsson og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir greiddu Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur og Guðmundi Andra Thorssyni atkvæði sín.

Brynjar Níelsson, Líneik Anna Sævarsdóttir og Þórarinn Ingi Pétursson sátu hjá og áréttuðu bókun sína frá 1. fundi nefndarinnar.
16.09.2019 1. fundur stjórn­skip­unar- og eftirlitsnefndar Kosning formanns og 2. varaformanns
Jón Steindór Valdimarsson lagði til að kosið yrði um formann og 2. varaformann nefndarinnar og að Þórhildur Sunna Ævarsdóttir yrði formaður og Guðmundur Andri Thorsson 2. varaformaður. Þar sem aðeins ein tillaga lá fyrir var lagt til að tilnefndir nefndarmenn væru sjálfkjörnir. Var það samþykkt.

Að því loknu lagði Líneik Anna Sævarsdóttir fram eftirfarandi bókun:

Við upphaf þessa kjörtímabils var gengið frá heildarsamkomulagi milli ríkisstjórnarflokkanna og stjórnarandstöðuflokkanna um skiptingu embætta í nefndum þingsins í samræmi við ákvæði þingskapa. Í því fólst meðal annars að tiltekin formannsembætti kæmu í hlut stjórnarandstöðunnar og skiptust þau svo milli flokkanna innbyrðis samkvæmt þeirra samkomulagi. Meirihluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar lítur svo á að í ljósi heildarsamkomulagsins sé það ekki þeirra hlutverk að taka afstöðu til þess hvernig stjórnarandstaðan hagar þessari skiptingu eða hvaða þingmenn tilnefndir eru af hálfu einstakra flokka.
Kolbeinn Óttarsson Proppé, Þórarinn Ingi Pétursson og Brynjar Níelsson tóku undir bókunina.

Brynjar Níelsson lagði fram eftirfarandi viðbótarbókun:

Ég styð ekki tillögu um að Þórhildur Sunna Ævarsdóttir verði formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis. Samkvæmt áliti siðanefndar Alþingis og forsætisnefndar var þingmaðurinn talinn hafa brotið gegn siðareglum Alþingis. Eftir að það álit lá fyrir sýndi þingmaðurinn málsmeðferð siðanefndar og forsætisnefndar fádæma lítilsvirðingu á opinberum vettvangi. Af þeirri ástæði mun ég ekki styðja tillöguna.