Uppbygging innviða
Frumkvæðismál (2003055)
Umhverfis- og samgöngunefnd
Nefndarfundir
Dagsetning | Fundur | Bókun |
---|---|---|
10.03.2020 | 49. fundur umhverfis- og samgöngunefndar | Uppbygging innviða Nefndin ræddi við Guðmund Ásmundsson og Sverri Jan Norðfjörð frá Landsneti gegnum fjarfundarbúnað. Gerðu þeir grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna. Hlé var gert á fundi frá kl. 09:36-10:09. Þá mætti á fund nefndarinnar Tryggvi Þór Haraldsson frá Rarik. Gerði hann grein fyrir sjónarmiðum við málið og svaraði spurningum nefndarmanna. |
09.03.2020 | 48. fundur umhverfis- og samgöngunefndar | Uppbygging innviða Á fund nefndarinnar mættu Benedikt Árnason frá forsætisráðuneytinu, Ingvi Már Pálsson frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu og Hermann Sæmundsson frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu. Kynntu þeir vinnu og niðurstöður átakshóps um úrbætur á innviðum, sem skipaður var í kjölfar fárviðrisins í desember 2019, og svöruðu spurningum nefndarmanna. |