Fjárhagsstaða háskólanna

Frumkvæðismál (2302067)
Fjárlaganefnd

Nefndarfundir

Dagsetning Fundur Bókun
08.02.2023 38. fundur fjárlaganefndar Fjárhagsstaða háskólanna
Haraldur Benediktsson annaðist fundarstjórn í fjarveru formanns.
Til fundarins komu Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Ásdís Halla Bragadóttir, Ari Sigurðsson, Ásgeir Runólfsson og Gylfi Þorsteinn Gunnlaugsson frá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti. Kynnt var samstarf háskóla og fjárhagsstaða þeirra. Farið var yfir úthlutun úr samstarfi háskóla, rekstrarafkomu þeirra og yfir framgang markmiða samstarfs háskóla. Gestirnir svöruðu síðan spurningum nefndarmanna. Samþykkt var skv. 1. mgr. 24. gr. starfsreglna fastanefnda Alþingis, sbr. 51. gr. þingskapa að óska eftir minnisblöðum frá ráðuneytinu um fjárhagsstöðu Háskóla Íslands, um þróun fjárheimilda samstarfs háskóla og reiknilíkan háskólanna. Einnig var samþykkt að óska eftir minnisblaði frá dómsmálaráðuneytinu um fjárhagsmálefni Landhelgisgæslunnar.