Nefndadagar 30. maí og 1. júní
Forsætisnefnd hefur samþykkt þá breytingu á starfsáætlun Alþingis að miðvikudaginn 30. maí verði ekki þingfundur en fastanefndir þingsins fundi í staðinn. Föstudagurinn 1. júní er nefndadagur samkvæmt starfsáætlun. Gert er ráð fyrir að nefndir fundi á eftirfarandi tímum:
Miðvikudagur 30. maí
- Kl. 9–12: Fjárlaganefnd, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, utanríkismálanefnd og velferðarnefnd.
- Kl. 12–13: Hádegishlé.
- Kl. 13–15: Þingflokksfundir.
- Kl. 15–19: Allsherjar- og menntamálanefnd, atvinnuveganefnd, efnahags- og viðskiptanefnd og umhverfis- og samgöngunefnd.
Föstudagur 1. júní
- Kl. 9–12: Fjárlaganefnd, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, utanríkismálanefnd og velferðarnefnd.
- Kl. 12–13: Hádegishlé
- Kl. 13–19: Allsherjar- og menntamálanefnd, atvinnuveganefnd, efnahags- og viðskiptanefnd, umhverfis- og samgöngunefnd.
Endanlegir fundatímar nefnda og dagskrár funda birtast á síðunni Nefndafundir