Fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis í dag 2. febrúar opinn fréttamönnum frá kl. 8.30
Fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis fimmtudaginn 2. febrúar verður opinn fréttamönnum frá kl. 8.30 meðan 2. og 3. dagskrárliðir eru ræddir. Rætt verður um mál 403 - afturköllun ákæru á hendur Geir H. Haarde, fyrrv. forsætisráðherra. Gestir verða:
Kl. 08:30 Sigurður Tómas Magnússon lögfræðingur.
Kl. 09:00 Stefán Már Stefánsson prófessor.
Kl. 10:00 Jón Þór Ólason hdl.
Að því loknu verður rætt um mál 3 - tillögur stjórnlagaráðs um breytingar á stjórnarskrá Íslands
Dagskrá fundarins:
Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fjölmiðlamönnum meðan húsrúm leyfir.
Fundurinn er opinn fréttamönnum en er hvorki tekinn upp né sent beint út frá honum á vegum Alþingis.
Fundurinn verður haldinn með stoð í nýju ákvæði 2. mgr. 19. gr. laga um þingsköp Alþingis.