Opinn fundur í umhverfis- og samgöngunefnd fimmtudaginn 13. október kl. 8:30
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis heldur opinn fund fimmtudaginn 13. október í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8–10 og hefst hann kl. 8:30. Fundarefnið er markmið í loftslagsmálum.
Gestir fundarins verða:
- Kl. 8:30: Frá Loftslagsráði: Halldór Þorgeirsson formaður
- Kl. 9:00: Frá Landvernd: Tryggvi Felixson formaður, frá Náttúruverndarsamtökum Íslands: Árni Finnsson, formaður stjórnar, og frá Ungum umhverfissinnum: Tinna Hallgrímsdóttir forseti
- Kl. 9:30: Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Unnur Brá Konráðsdóttir, aðstoðarmaður ráðherra, Halla Sigrún Sigurðardóttir, skrifstofustjóri á skrifstofu loftlagsmála, og Helga Barðadóttir, sérfræðingur á skrifstofu loftslagsmála
Fundurinn verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.
Bein útsending verður frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis.
Að loknum fundi má nálgast upptöku af fundinum hér.
Fundurinn verður haldinn samkvæmt X. kafla reglna um starfsreglur fastanefnda Alþingis.
© Bragi Þór Jósefsson