Útgáfa og meðferð rafeyris
216. mál á 141. löggjafarþingi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra.
Markmið
Að innleiða tilskipun Evrópuþingsins um stofnun og rekstur rafeyrisfyrirtækja.
Helstu breytingar og nýjungar
Innleiða á tilskipun um rafeyri en það eru peningaleg verðmæti í formi kröfu á útgefanda sem er geymd í rafrænum miðli, þ.m.t. á segulformi, gefin út í skiptum fyrir fjármuni, í þeim tilgangi að framkvæma greiðslu í skilningi laga um greiðsluþjónustu og samþykkt er sem slík af öðrum aðilum en útgefandanum sjálfum. Slík ákvæði hafa ekki verið í íslenskum lögum.
Breytingar á lögum og tengd mál
Breyta þarf nokkrum lögum, einkum lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, og innleiða í íslenskan rétt ákvæði tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2009/110/EC, um stofnun og rekstur rafeyrisfyrirtækja og varfærniseftirlit með þeim.
- Endurflutt: útgáfa og meðferð rafeyris, 708. mál (efnahags- og viðskiptaráðherra) á 140. þingi (31.03.2012)
Kostnaður og tekjur
Hefur ekki áhrif á fjárhag ríkissjóðs.
Umsagnir (helstu atriði)
Gerðar eru allnokkrar efnislegar athugasemdir sem þó eru minniháttar.
Afgreiðsla
Samþykkt með nokkrum minniháttar breytingum.Aðrar upplýsingar
Ný lög um greiðsluþjónustu, nr. 120/2011, tóku gildi 1. desember 2011 en með setningu þeirra voru ákvæði svokallaðrar greiðsluþjónustutilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2007/64/EB, Payment Services Directive (PSD), innleidd í íslenskan rétt.