Samantekt um þingmál

Sjúkraskrár

497. mál á 141. löggjafarþingi.
Velferðarráðherra.

Markmið

Að taka af allan vafa um rétt borgarans til að bera synjun um aðgang að sjúkraskrá undir embætti landlæknis, hvort sem um er að ræða eigin sjúkraskrá eða sjúkraskrá látins aðstandanda.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt til að heimildir til að kæra synjanir og ákvarðanir um leiðréttingu eða eyðingu sjúkraskrárupplýsinga til ráðherra verði felldar brott.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um sjúkrarskrár nr. 55/2009.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir auknum kostnaði fyrir ríkissjóð.

Umsagnir (helstu atriði)

Í  umsögnum var gagnrýnt að réttarstaða sjúklinga yrði lakari þegar heimild til að kæra ákvörðun til velferðarráðuneytisins yrði felld brott. Einnig yrðu völd embættis landlæknis óeðlilega mikil.

Afgreiðsla

Frumvarpið var ekki afgreitt úr nefnd.


Síðast breytt 12.04.2013. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.