Samantekt um þingmál

Byggingarvörur

543. mál á 141. löggjafarþingi.
Umhverfis- og auðlindaráðherra.

Markmið

Að setja sérstök lög um markaðssetningu á byggingarvörum og innleiða tilskipun ESB.

Helstu breytingar og nýjungar

Helstu breytingarnar eru að kveðið er skýrar en áður á um ábyrgð, hlutverk og skyldur aðila, svo sem framleiðenda, innflytjenda, dreifenda og markaðseftirlitsstofnana.

Breytingar á lögum og tengd mál

Í lögum nr. 160/2010, VIII. kafla, er fjallað um viðskipti með byggingarvörur. Gert er ráð fyrir að sá kafli verði felldur brott.

Kostnaður og tekjur

Hefur ekki áhrif á ríkissjóð.

Umsagnir (helstu atriði)

Engar umsagnir bárust.

Afgreiðsla

Frumvarpið var ekki afgreitt úr nefnd.

Aðrar upplýsingar

Reglugerðin er birt sem fylgiskjal með frumvarpinu.


Síðast breytt 12.04.2013. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.