Samantekt um þingmál

Skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða

625. mál á 141. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að auka svigrúm lífeyrissjóða til fjárfestinga.

Helstu breytingar og nýjungar

Launagreiðendum verður heimilt að greiða inn á skuldbindingu sína við lífeyrissjóð með því að gefa út skuldabréf sem ekki eru skráð á skipulegum markaði. Framlengd er heimild til fjárfestinga í samlagsfélögum, allt að 20%, til ársloka 2014. Þá er lagt til að heimild til að lífeyrissjóðir fjárfesti fyrir allt að 20% af hreinni eign sjóðsins í óskráðum verðbréfum verði hækkuð í 25%.

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á lögum nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.

Kostnaður og tekjur

Hefur ekki áhrif á fjárhag ríkissjóðs.

Umsagnir (helstu atriði)

Nokkrar umsagnir bárust og eru þær almennt jákvæðar.

Afgreiðsla

Frumvarpið var ekki afgreitt úr nefnd.


Síðast breytt 12.04.2013. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.