Samantekt um þingmál

Gjaldeyrismál

669. mál á 141. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að losa aðeins um heimildir til fjármagnshreyfinga og gjaldeyrisviðskipta en um leið að herða framkvæmd eftirlits með gjaldeyrisviðskiptum.

Helstu breytingar og nýjungar

Rýmkuð verða ýmis ákvæði er varða heimildir til gjaldeyrisviðskipta, svo sem vegna framfærslu, endurfjárfestinga, erlendrar lántöku og gjaldeyrisviðskipta í tengslum við atvinnustarfsemi. Seðlabankinn fær heimild til þess að setja reglur um undanþágur frá ákveðnum takmörkunum laganna og eftirlit með gjaldeyrisviðskiptum vegna greiðslna vaxta, verðbóta, arðs og samningsbundinna afborgana verður hert. Þá fær bankinn heimild til að beita stjórnvaldssektum og sektarupphæðir eru hækkaðar.

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á lögum nr. 87/1992 um gjaldeyrismál.
  • Endurflutt: Gjaldeyrismál, 731. mál (efnahags- og viðskiptaráðherra) á 140. þingi (31.03.2012)

Kostnaður og tekjur

Hefur ekki áhrif á fjárhag ríkissjóðs.

Umsagnir (helstu atriði)

Tvær umsagnir bárust, önnur með örfáum efnislegum athugasemdum en hin með veigamikilli gagnrýni á gjaldeyriseftirlit Seðlabankans.

Afgreiðsla

Samþykkt með minniháttar breytingum.


Síðast breytt 04.04.2013. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.