Samantekt um þingmál

Leiðrétting verðtryggðra fasteignaveðlána

485. mál á 143. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að lækka höfuðstól verðtryggðra fasteignaveðlána.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að ráðherra verði heimilað að gera samkomulag við lífeyrissjóði, Íbúðalánasjóð og fjármálafyrirtæki um breytingu á verðtryggðum fasteignaveðlánum einstaklinga á tímabilinu 1. janúar 2008 til 31. desember 2009.

Breytingar á lögum og tengd mál

Kostnaður og tekjur

Í fjárlögum ársins 2014 er gert ráð fyrir 20 milljarða króna útgjöldum vegna þessa málefnis en stefna stjórnvalda er að nettóáhrif á ríkissjóð verði lítil sem engin. Í áliti skrifstofu opinberra fjármála segir meðal annars að í frumvarpinu séu ekki allar forsendur aðgerðanna afmarkaðar fyrir fram með þeim hætti að beinlínis verði ráðið af ákvæðum þess hver hugsanlegur heildarkostnaður ríkissjóðs gæti orðið.

Umsagnir (helstu atriði)

Margar umsagnir bárust og í flestum þeirra er lýst yfir efasemdum um gagnsemi frumvarpsins, það hafi of mikinn kostnað í för með sér eða að tilteknir hópar muni ekki njóta ávinnings af samþykkt þess.

Afgreiðsla

Samþykkt með minni háttar breytingum.

Aðrar upplýsingar

Kynning forsætisráðuneytis á aðgerðum ríkisstjórnarinnar, 26. mars 2014.

Kynning ríkisstjórnarinnar á fyrirhuguðum aðgerðum í skuldamálum, 30. nóvember 2013.



Síðast breytt 20.05.2014. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.