Samantekt um þingmál

Örnefni

403. mál á 144. löggjafarþingi.
Mennta- og menningarmálaráðherra.

Markmið

Að stuðla að verndun örnefna og nafngiftahefða sem hluta af íslenskum menningararfi. 

Helstu breytingar og nýjungar

Stjórnsýsla við skráningu örnefna er skýrð og samræmd svo að nafngiftir endurspegli sem best raunveruleikann. Ábyrgð á nafngiftum og skráningu þeirra flyst til sveitarfélaga. Fulltrúum í örnefnanefnd verður fjölgað úr þremur í fimm og skulu allir hafa sérþekkingu á íslensku máli, örnefnum og staðfræði. Lagt er til að örnefnagrunnur Landmælinga Íslands verði aðgengilegur í stafrænu formi án gjaldtöku. 

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um bæjanöfn o.fl. nr. 35/1953.
  • Endurflutt: örnefni, 481. mál (mennta- og menningarmálaráðherra) á 143. þingi (26.03.2014)
  • Endurflutt: örnefni, 620. mál (mennta- og menningarmálaráðherra) á 141. þingi (26.02.2013)

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir auknum kostnaði fyrir ríkissjóð. 

Umsagnir (helstu atriði)

Umsagnir voru jákvæðar, en athugasemdir voru gerðar við einstaka greinar frumvarpsins.

Afgreiðsla

Frumvarpið varð að lögum með lítilsháttar breytingum.


Síðast breytt 06.03.2015. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.