Samantekt um þingmál

Þátttaka íslenska ríkisins í kolvetnisstarfsemi

9. mál á 144. löggjafarþingi.
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra.

Markmið

Að heimila stofnun ríkisolíufélags.

Helstu breytingar og nýjungar

Félagið skal sjá um alla umsýslu og framkvæmd á þátttöku ríkisins í útgefnum kolvetnisleyfum eða tengdri starfsemi og vera leyfishafi fyrir hönd ríkisins í þeim leyfum sem ríkið tekur þátt í. Sérstaklega er tekið fram að félaginu verði óheimilt að starfa sem vinnslufyrirtæki. Gert er ráð fyrir að frumvarpið öðlist lagagildi við samþykkt þess en komi til framkvæmda þegar ákvörðun um stofnun hlutafélags liggur fyrir.

Breytingar á lögum og tengd mál

Um er að ræða ný lög en vísað er til laga nr. 13/2001 um leit, rannsóknir og vinnslu kolvetnis.

Kostnaður og tekjur

Stofnkostnaður er áætlaður um 20 milljónir króna.

Umsagnir (helstu atriði)

Tvær umsagnir án athugasemda bárust.

Afgreiðsla

Samþykkt með þeim breytingum að hert er á hæfniskröfum stjórnenda.

Aðrar upplýsingar

Norska ríkisolíufélagið Petoro.

Grænlenska ríkisolíufélagið Nunaoil.



Síðast breytt 29.01.2015. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.