Ríkisendurskoðandi og endurskoðun ríkisreikninga
112. mál á 145. löggjafarþingi.
Forsætisnefndin.
Markmið
Heildarendurskoðun á gildandi lögum um Ríkisendurskoðun í þeim tilgangi meðal annars að styrkja frekar eftirlit þingsins með framkvæmdarvaldinu.Helstu breytingar og nýjungar
Ríkisendurskoðandi verður kosinn af Alþingi í stað þess að vera ráðinn af forsætisnefnd. Kveðið er á um rétt til umsagnar um drög að skýrslum og aðgangur almennings að upplýsingum er rýmkaður. Gert er ráð fyrir að ríkisendurskoðandi greini forsætisnefnd frá umfangi beiðna og áætluðum skýrsluskilum og lagt er til að forsætisnefnd ákveði starfskjör ríkisendurskoðanda.
Breytingar á lögum og tengd mál
Lög um Ríkisendurskoðun nr. 86/1997.- Endurflutt: Ríkisendurskoðandi og endurskoðun ríkisreikninga, 307. mál (forsætisnefndin) á 144. þingi (21.10.2014)
- Endurflutt: Ríkisendurskoðandi og ríkisendurskoðun, 488. mál (forsætisnefndin) á 143. þingi (27.03.2014)
Kostnaður og tekjur
Kemur ekki fram í frumvarpi.Aðrar upplýsingar
Löggjöf á NorðurlöndumBekendtgørelse af lov om revisionen af statens regnskaber m.m.(Rigsrevisorloven) LBK nr 101 af 19/01/2012.