Samantekt um þingmál

Skattar og gjöld

373. mál á 145. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að breyta ýmsum lagaákvæðum um skatta og gjöld.

Helstu breytingar og nýjungar

Helstu breytingar sem snúa að almenningi eru: Skattaskil og upplýsingar varðandi skattamál verða alfarið rafræn, meðal annars til þess að persónuafsláttur nýtist betur. Söluhagnaður, sem getur myndast þegar fólk flytur úr stóru húsnæði í minna húsnæði, verður ekki lengur skattlagður. Álagningardagur skatta verður um 1. júlí og kærufrestur til loka ágúst. Gjafir til samtaka sem starfa að almannaheill verða undanþegnar erfðafjárskatti. 

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á alls níu lögum en veigamestu breytingarnar eru á lögum um tekjuskatt nr. 90/2003 og lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda nr. 45/1987.

Kostnaður og tekjur

Hefur óveruleg áhrif á ríkissjóð.

Umsagnir (helstu atriði)

Nokkrar athugasemdir voru gerðar um ýmsar greinar frumvarpsins.

Afgreiðsla

Frumvarpið var samþykkt með minni háttar breytingum.

Aðrar upplýsingar

Vakin er athygli á að í fylgiskjali I í frumvarpinu er "Samræmdur staðall um upplýsingagjöf og áreiðanleikakannanir vegna upplýsinga um fjárhagsreikninga."

Frumvarp sem tekur á athugasemdum ESA um skattareglur. Fjármálaráðuneytið, frétt 12.11.2015. 


Síðast breytt 21.12.2015. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.