Samantekt um þingmál

Sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla

385. mál á 145. löggjafarþingi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Markmið

Að skýra betur hvað teljist vera ólögmætur sjávarafli.

Helstu breytingar og nýjungar

Skilgreining á því hvað telst ólögmætur sjávarafli í skilningi laganna verður víkkuð út og látin taka til afla sem fenginn er án þess að tilskilin veiðileyfi hafi verið fyrir hendi, sem fenginn er utan leyfilegra veiðidaga, með óleyfilegum veiðarfærum, á svæði þar sem viðkomandi veiðar eru bannaðar og þess afla sem ekki nær tiltekinni lágmarksstærð.  

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á lögum um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla nr. 37/1992.

Kostnaður og tekjur

Hefur ekki áhrif á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþyktt nær óbreytt.

Aðrar upplýsingar

Fiskistofa


Síðast breytt 17.03.2016. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.