Samantekt um þingmál

Vextir og verðtrygging

817. mál á 145. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að takmarka veitingu verðtryggðra lána með jafngreiðslufyrirkomulagi.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagðar eru til almennar takmarkanir á veitingu nýrra verðtryggðra langtímajafngreiðslulána með því að stytta hámarkslánstíma þeirra í 25 ár. Hann er nú 40 ár. Undantekningar eru að heimilt er að veita slík lán til allt að 40 ára sé lántaki yngri en 35 ára, til allt að 35 ára sé lántaki 35–39 ára og til allt að 30 ára sé lántaki 40–44 ára. Þá er einnig heimilt að veita slík lán, þ.e. lengri en 25 ár, til einstaklinga með 3,5 milljónir kr. í skattskyldar tekjur eða 6 milljónir kr. ef lántakar eru fleiri en einn. Undanþága gildir einnig ef veðsetningarhlutfallið er lægra en 50%.

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á lögum um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 (14. gr.).

Kostnaður og tekjur

Hefur líklega óveruleg áhrif á ríkissjóð.

Aðrar upplýsingar

Kaup á fyrstu fasteign auðvelduð. Kynningarefni fjármála- og efnahagsráðuneytis 15. ágúst 2016.


Síðast breytt 24.08.2016. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.