Samantekt um þingmál

Kjararáð

871. mál á 145. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að fækka þeim aðilum sem kjararáð ákvarðar laun og önnur starfskjör hjá.

Helstu breytingar og nýjungar

Þeim aðilum sem kjararáð ákvarðar laun hjá fækkar verulega og ákvæði eru um hvernig skuli ákvarða um laun þeirra sem ekki heyra lengur undir kjararáð. Í meginatriðum munu launaákvarðanir þeirra falla undir ákvæði um kjarasamninga opinberra starfsmanna. Viðkomandi stéttarfélag mun semja fyrir þeirra hönd og stjórnir viðkomandi stofnana eða félaga semja um starfskjör. 

Breytingar á lögum og tengd mál

Lítils háttar breytingar þarf að gera á 25 lögum en meginbreytingin er á lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996.

Kostnaður og tekjur

Hefur líklega ekki áhrif á útgjöld ríkissjóðs.

Aðrar upplýsingar

Kjararáð.
Norska leiðin. Statens lederlønssystem


Síðast breytt 19.09.2016. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.