Samantekt um þingmál

Heiti Einkaleyfastofunnar

541. mál á 149. löggjafarþingi.
Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

Markmið

Að heitið Hugverkastofan komi í stað heitisins Einkaleyfastofan sem nafn á skrifstofu hugverkaréttinda. 

Helstu breytingar og nýjungar

Lögð er til breyting á heiti skrifstofu hugverkaréttinda til að gefa skýrari mynd af starfsemi stofnunarinnar þar sem það vísar nú eingöngu til einnar tegundar hugverkaréttinda á sviði iðnaðar.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um einkaleyfi, nr. 17/1991.
Lög um faggildingu o.fl., nr. 24/2006.
Lög um hönnun, nr. 46/2001.
Lög um lífræna landbúnaðarframleiðslu, nr. 162/1994.
Lög um loftslagsmál, nr. 70/2012.
Lög um vörumerki, nr. 45/1997.
Sveitarstjórnarlög, nr. 138/2011.
Lög um vernd afurðarheita sem vísa til uppruna, landsvæðis eða hefðbundinnar sérstöðu, nr. 130/2014.
Lög um þjóðfána Íslendinga og ríkisskjaldarmerkið, nr. 34/1944.
Lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018.
Lög félagamerki, nr. 155/2002.

Kostnaður og tekjur

Gert er ráð fyrir óverulegum áhrifum á afkomu ríkissjóðs.

Afgreiðsla

Samþykkt óbreytt.

Aðrar upplýsingar

Hugverkastefna 2016-2022. Hugverkaréttindi sem viðskiptatæki og verðmæti. Atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið, 2016.


Síðast breytt 02.05.2019. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.