Samantekt um þingmál

Raforkulög og Orkustofnun

782. mál á 149. löggjafarþingi.
Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

Markmið

Að innleiða þriðju raforkutilskipun ESB að því er varðar sjálfstæði raforkueftirlits Orkustofnunar.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að raforkueftirlit Orkustofnunar verði eflt með því að skýra nánar hlutverk og sjálfstæði Orkustofnunar þegar stofnunin sinnir eftirliti með aðilum á raforkumarkaði. Til að geta sinnt eftirlitsskyldum sínum með sjálfstæðum hætti er einnig gert ráð fyrir að Orkustofnun verði falin aukin úrræði til að framfylgja lögunum. Jafnframt er lagt til að gjald til að standa undir kostnaði við eftirlit samkvæmt lögunum (raforkueftirlitsgjald) verði hækkað í samræmi við aukin verkefni Orkustofnunar að því er það eftirlit varðar. 

Breytingar á lögum og tengd mál

Raforkulög, nr. 65/2003.
Lög um Orkustofnun, nr. 87/2003.

Kostnaður og tekjur

Gert er ráð fyrir að tekjur ríkissjóðs muni aukast um 47 milljónir kr. og forgangsraðað verður fyrir kostnaði Orkustofnunar innan núgildandi útgjaldaramma atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis. 

Afgreiðsla

Samþykkt með lítils háttar breytingum.

Aðrar upplýsingar

Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/72/EB frá 13. júlí 2009 um sameiginlegar reglur um innri markaðinn fyrir raforku og um niðurfellingu á tilskipun 2003/54/EB ( íslenska) ( enska).


Síðast breytt 01.10.2019. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.