Samantekt um þingmál

Aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum

700. mál á 150. löggjafarþingi.
Félags- og barnamálaráðherra.

Markmið

Að tryggja að ekki verði skortur hér á landi á nauðsynlegum persónuhlífum fyrir heilbrigðisstarfsmenn til að hefta eins og kostur er útbreiðslu COVID-19-sjúkdómsins og til að takast á við afleiðingar af frekari útbreiðslu sjúkdómsins.

Helstu breytingar og nýjungar

Í ljósi þeirrar stöðu sem er uppi vegna útbreiðslu COVID-19-sjúkdómsins er í frumvarpinu gert ráð fyrir að Vinnueftirlit ríkisins geti heimilað innflutning á persónuhlífum til nota í tengslum við heilbrigðisstarfsemi, þ.m.t. sóttvarnir, þrátt fyrir að búnaðurinn sé ekki CE-merktur. Gert er ráð fyrir að heimild Vinnueftirlitsins til að heimila slíkan innflutning sé háð því skilyrði að rökstudd beiðni komi frá heilbrigðisyfirvöldum eða frá forsvarsmönnum starfsstofa heilbrigðisstarfsmanna um innflutninginn. Þrátt fyrir framangreint er gert ráð fyrir að í umræddu ákvæði til bráðabirgða verði kveðið á um að innflytjendur þeirra persónuhlífa sem um ræðir tryggi að hlífarnar uppfylli viðurkenndar öryggis- og heilbrigðiskröfur, svo sem viðeigandi staðla, enda þótt þær séu ekki CE-merktar.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, nr. 46/1980.

Kostnaður og tekjur

Ekki liggja fyrir upplýsingar um fjárhagsáhrif á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþykkt með breytingu til að árétta að innfluttar persónuhlífar, sem eru ekki CE-merktar, eru einnig til nota fyrir viðbragðsaðila vegna útbreiðslu COVID-19.


Síðast breytt 31.03.2020. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.