Samantekt um þingmál

Lax- og silungsveiði

345. mál á 151. löggjafarþingi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Markmið

Að takmarka þá hættu sem annars vegar felst í því að þeir sem fara með meiri hluta atkvæðisréttar í veiðifélagi taki ákvörðun um takmörkun veiði í andstöðu við markmið laganna um skynsamlega og hagkvæma nýtingu og hins vegar að þeir sem fara með talsvert atkvæðavægi taki ákvörðun um að ráðstafa veiðiréttinum til sín eða tengdra aðila.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að styrkja minnihlutavernd í veiðifélagi með sérstökum reglum um atkvæðavægi á fundum. Þá eru lagðar til breytingar sem skerpa á úrræðum Fiskistofu, m.a. vegna ólögmætra framkvæmda. Einnig eru lagðar til breytingar sem auðvelda sameigendum að taka þátt í atkvæðagreiðslum innan veiðifélaga. Þá er lögð til breyting á skipan matsnefndar sem og breyting á kostnaðarfyrirkomulagi vegna starfa matsnefndar skv. VII. kafla laganna. 

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um lax- og silungsveiði, nr. 61/2006.
  • Endurflutt: Lax- og silungsveiði, 251. mál (sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra) á 150. þingi (16.10.2019)

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþykkt með lítils háttar breytingum.


Síðast breytt 19.05.2021. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.