Samantekt um þingmál

Tekjuskattur og staðgreiðsla opinberra gjalda

4. mál á 151. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að heimila dótturfélögum félaga í aðildarríkjum EES og EFTA eða í Færeyjum, sem staðsett eru hér á landi, samsköttun með innlendum samstæðufélögum. Að festa í sessi undanþágu fyrir innlend samstæðufélög frá takmörkunum á reglum um vaxtafrádrátt. Að útvíkka ábyrgð og skyldu innlendra aðila í byggingarstarfsemi eða mannvirkjagerð á skilum á staðgreiðslu, þ.e. þegar um er að ræða vinnu starfsmanna erlendra aðila fyrir innlenda aðila hér á landi, að tilteknum skilyrðum uppfylltum.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að dótturfélögum félaga í aðildarríkjum EES og EFTA eða í Færeyjum, sem staðsett eru hér á landi, verði heimil samsköttun með innlendum samstæðufélögum. Þá er lagt til að hérlendu móðurfélagi verði heimilt að óska eftir takmarkaðri samsköttun með dótturfélögum sínum skráðum innan eins aðildarríkis EES, EFTA eða í Færeyjum að því gefnu að öll almenn skilyrði samsköttunar séu uppfyllt að öðru leyti. Einnig er lagt til að festa í sessi undanþágu fyrir innlend samstæðufélög frá takmörkunum á reglum um vaxtafrádrátt. Loks eru lagðar til breytingar á lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda, nr. 45/1987, um skattlagningu starfsmanna sem koma hingað til lands á grundvelli samninga um útleigu vinnuafls eða annars konar vinnuframlag í byggingarstarfsemi eða mannvirkjagerð.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um tekjuskatt, nr. 90/2003.
Lög um staðgreiðslu opinberra gjalda, nr. 45/1987.

Kostnaður og tekjur

Á þessu stigi er ekki hægt að meta hvaða áhrif ákvæði frumvarpsins um samsköttun muni hafa en þau munu koma fram sem lækkun á tekjuskatti lögaðila vegna samnýtingar og nýtingar á rekstrartapi innan samstæðu. Hvað varðar ákvæði frumvarpsins um útsenda starfsmenn þá er gert ráð fyrir að tekjur ríkissjóðs vegna aukins tekjuskatts einstaklinga og tryggingagjalds muni aukast um allt að 300 milljónir kr. á ári.

Afgreiðsla

Frumvarpið var ekki afgreitt úr nefnd.

Aðrar upplýsingar

Áminningarbréf Eftirlitsstofnunar EFTA til Íslands um samsköttun og nýtingu eftirstöðva rekstrartapa félaga (27. mars 2018).



Síðast breytt 24.06.2021. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.