Samantekt um þingmál

Breyting á ýmsum lögum til að mæta efnahagslegum áhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru

698. mál á 151. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að létta undir með rekstraraðilum og einstaklingum í heimfaraldri kórónuveiru.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að þeim lögaðilum og einstaklingum í atvinnurekstri sem nýttu sér heimild til að dreifa greiðslum staðgreiðslu og tryggingagjalds og frestuðu greiðslum til 15. dags mánaðanna júní, júlí og ágúst 2021 verði gefinn kostur á enn frekari fresti með greiðsludreifingu að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Þá er lagt til að einstaklingum verði að nýju heimilað að taka tímabundið út ákveðinn hluta af séreignarsparnaði sínum. Heimilt yrði að sækja um úrræðið út árið 2021 og samanlögð fjárhæð geti numið allt að 12 milljónum kr. sem greiddar verði út á 15 mánaða tímabili frá því að umsókn barst vörsluaðila.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um staðgreiðslu opinberra gjalda, nr. 45/1987.
Lög um tryggingagjald, nr. 113/1990.
Lög um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997.

Kostnaður og tekjur

Heildaráhrifin af úttekt séreignarsparnaðar munu ráðast af því hversu margir koma til með að nýta sér það. Ef miðað er við að nýtingin verði svipuð á árinu 2021 og hún var árið 2020 og að flestir sem nýta úrræðið séu með aðrar tekjur en séreignarsparnaðinn má gera ráð fyrir að tekjuskattgreiðslur í ríkissjóð muni nema 5,6 milljörðum kr.

Afgreiðsla

Samþykkt með lítils háttar breytingum.


Síðast breytt 17.05.2021. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.