Samantekt um þingmál

Rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur

450. mál á 152. löggjafarþingi.
Heilbrigðisráðherra.

Markmið

Að setja skýrar reglur um heimildir til sölu, markaðssetningar og notkunar á nikótínvörum og fella það undir sömu reglur og gilda samkvæmt lögum um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.

Helstu breytingar og nýjungar

Nikótínvörum verður bætt inn í ákvæði laga um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur sem þýðir að þær muni að mestu leyti lúta sömu reglum og gilda um rafrettur og áfyllingar fyrir þær.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur, nr. 87/2018.
Lög um fjölmiðla, nr. 38/2011.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir verulegum útgjöldum fyrir ríkissjóð. Óverulegur kostnaður gæti þó komið til hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun vegna eftirlits og verður hann þá fjármagnaður af útgjaldasvigrúmi málefnasviðs 32.

Afgreiðsla

Samþykkt með þeirri breytingu að felld var brott tillaga að banni við innflutningi, framleiðslu og sölu á nikótínvörum sem innihalda bragðefni.


Síðast breytt 24.02.2023. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.