Samantekt um þingmál

Útlendingar

595. mál á 152. löggjafarþingi.
Dómsmálaráðherra.

Markmið

Að auka skilvirkni málsmeðferðartíma útlendingamála, sporna við misnotkun verndarkerfisins, skerpa á heimildum til skerðingar og niðurfellingar þjónustu og tryggja framkvæmd ákvarðana um frávísun og brottvísun.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagðar eru til breytingar til að mæta þeim annmörkum sem hafa komið í ljós við beitingu ákvæða laga um útlendinga varðandi alþjóðlega vernd. Er ætlunin að gera framkvæmd þessara ákvæða skýrari og fyrirsjáanlegri og auka skilvirkni og mannúð við meðferð slíkra mála.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um útlendinga, nr. 80/2016.
Lög um atvinnuréttindi útlendinga, nr. 97/2002.
Lögreglulög, nr. 90/1996.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir auknum kostnaði fyrir ríkissjóð.

Afgreiðsla

Frumvarpið var ekki afgreitt úr nefnd.

Aðrar upplýsingar

Löggjöf á Norðurlöndum

Danmörk
Bekendtgørelse af udlændingeloven  LBK nr 1205 af 25/08/2022.

Finnland
Utlänningslag  30.4.2004/301.
Lag om mottagande av personer som söker internationellt skydd och om identifiering av och hjälp till offer för människohandel  17.6.2011/746.

Noregur
Lov om utlendingers adgang til riket og deres opphold her (utlendingsloven)  LOV-2008-05-15-35.

Svíþjóð
Utlänningslag (2005:716).
Lag om mottagande av asylsökande m.fl. (1994:137).


Síðast breytt 22.02.2023. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.