Samantekt um þingmál

Útlendingar og atvinnuréttindi útlendinga

597. mál á 152. löggjafarþingi.
Dómsmálaráðherra.

Markmið

Að jafna stöðu ungs fólks á við nágrannaþjóðir okkar, veita ungu fólki enn frekari tækifæri til þess að koma til Íslands og dvelja hér í þeim tilgangi að kynnast lífsháttum annarra þjóða og víkka menningarlegan sjóndeildarhring sinn.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að aldursbil ungs fólks sem getur fengið dvalar- og atvinnuleyfi vegna gagnkvæmra samninga Íslands við erlend ríki verði lengt úr 18–26 í 18–31. Einnig er lagt til að unnt verði að framlengja slík dvalar- og atvinnuleyfi upp í tvö ár ef samningar við erlend ríki gera ráð fyrir því.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um útlendinga, nr. 80/2016.
Lög um atvinnuréttindi útlendinga, nr. 97/2002.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir að lögfesting frumvarpsins hafi áhrif á ríkissjóð sem nokkru nemur.

Afgreiðsla

Samþykkt með minni háttar breytingum.


Síðast breytt 22.02.2023. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.