Samantekt um þingmál

Tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi

692. mál á 152. löggjafarþingi.
Menningar- og viðskiptaráðherra.

Markmið

Að efla alþjóðlega samkeppnishæfni núverandi endurgreiðslukerfis með því að stuðla að því að fleiri stór verkefni verði unnin á Íslandi.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að hlutfall endurgreidds framleiðslukostnaðar fyrir afmörkuð stærri verkefni í kvikmyndagerð á Íslandi sé 35% en fyrir önnur verkefni sem uppfylla skilyrði laganna sé hlutfallið áfram 25% eins og verið hefur.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi, nr. 43/1999.

Kostnaður og tekjur

Gert er ráð fyrir að hækka þurfi fjárheimild til endurgreiðslna vegna kvikmyndagerðar um 300 milljónir kr. miðað við fjárheimild í fjárlögum ársins 2022. Gert er ráð fyrir þessum útgjöldum í gildandi útgjaldaramma í fimm ára fjármálaáætlun sem og í fjárlögum fyrir árið 2023.

Afgreiðsla

Samþykkt með þeim breytingum að skilyrði til að eiga rétt á 35% endurgreiðsluhlutfalli voru hert.


Síðast breytt 27.02.2023. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.