Samantekt um þingmál

Verslun með áfengi og tóbak o.fl.

110. mál á 149. löggjafarþingi.
Þorsteinn Víglundsson.

Markmið

Að afnema einkaleyfi ríkisins á smásölu áfengis og heimila einkaaðilum slíka sölu.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að einkaleyfi Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins á smásölu áfengis verði afnumin og að smásala áfengis verið gefin frjáls að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Gert er ráð fyrir að heimilt verði að auglýsa áfengi með ákveðnum takmörkunum. Einnig er lagt til að aukið fjármagn verði sett í forvarnir og fræðslu til eflingar lýðheilsu.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um verslun með áfengi og tóbak, nr. 86/2011.
Lög um aukatekjur ríkissjóðs, nr. 88/1991.
Áfengislög, nr. 75/1998.
Lög um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007.
Lög um fjölmiðla, nr. 38/2011.

Kostnaður og tekjur

Ekki liggja fyrir upplýsingar um áhrif á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Frumvarpið var ekki afgreitt úr nefnd að lokinni 1. umræðu.

Aðrar upplýsingar

Lög á Norðurlöndum

Finnland
Alkohollag  28.12.2017/1102.

Noregur
Lov om omsetning av alkoholholdig drikk m.v. (alkoholloven)   LOV-1989-06-02-27.

Svíþjóð
Alkohollag  ( 2010:1622).


Síðast breytt 26.06.2019. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.