Breyting á starfsáætlun
Sú breyting hefur verið gerð á starfsáætlun Alþingis að miðvikudagurinn 27. febrúar verður nefndadagur en ekki þingfundadagur. Gert er ráð fyrir að nefndir fundi á eftirfarandi tímum:
- Kl. 9:30-12:00: Fjárlaganefnd, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, utanríkismálanefnd og velferðarnefnd.
- Kl. 12-13: Hádegishlé.
- Kl. 13-15: Þingflokksfundir.
- Kl. 15-18: Allsherjar- og menntamálanefnd, atvinnuveganefnd, efnahags- og viðskiptanefnd og umhverfis- og samgöngunefnd.