23.4.2021

Óundirbúnar fyrirspurnir mánudaginn 26. apríl

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra verða á dagskrá við upphaf þingfundar mánudaginn 26. apríl kl. 13:00. Þá verða til svara forsætisráðherra, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, heilbrigðisráðherra, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, mennta- og menningarmálaráðherra og félags- og barnamálaráðherra.