2.11.2018

Tölfræðilegar upplýsingar um 148. löggjafarþing

Þingfundum 148. löggjafarþings var frestað 18. júlí 2018. Þingið var að störfum frá 14. til 29. desember 2017, frá 22. janúar til 13. júní 2018 og 17. og 18. júlí vegna hátíðarþingfundar á Þingvöllum.

Þingfundir voru samtals 82 og stóðu í rúmar 411 klst. Meðallengd þingfunda var 5 klst. Lengsti þingfundurinn stóð í 15 klst. og 2 mín. Lengsta umræðan var um fjármálaáætlun 2019-2023 sem stóð samtals í rúmar 33,5 klst. Þingfundadagar voru alls 64.

Af 160 frumvörpum urðu alls 84 að lögum, 75 voru óútrædd og einu var vísað til ríkisstjórnarinnar. Af 86 þingsályktunartillögum voru 32 samþykktar, 50 tillögur voru óútræddar, tvær tillögur voru felldar og tveim var vísað til ríkisstjórnarinnar.

20 skriflegar skýrslur voru lagðar fram. 13 beiðnir um skýrslur komu fram, þar af  8 til ráðherra og 5 til Ríkisendurskoðanda, en 2 voru afturkallaðar. Fjórar skýrslur samkvæmt beiðni bárust, þrjár frá ráðherra og ein frá Ríkisendurskoðanda.

Fyrirspurnir á þingskjölum voru samtals 402. Fyrirspurnir til munnlegs svars voru 35 og var 34 svarað.

367 skriflegar fyrirspurnir voru lagðar fram og var 349 þeirra svarað, skriflegt svar barst ekki við 17 en 1 var kölluð aftur.

Þingmál til meðferðar í þinginu voru 681 og tala prentaðra þingskjala var 1404.

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra voru 143. Sérstakar umræður voru 30. Ein munnleg skýrsla ráðherra var flutt.

Samtals voru haldnir 382 fundir hjá fastanefndum.

Yfirlit um stöðu mála á 148. löggjafarþingi og þingfundi.

Ljósmyndir frá setningu 148. löggjafarþings.