Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 948, 125. löggjafarþing 491. mál: vaxtalög (regluheimildir).
Lög nr. 22 14. apríl 2000.
Seðlabanki Íslands setur nánari reglur um verðtryggingu sparifjár og lánsfjár.
Fjármálaeftirlitinu er heimilt að setja reglur um jöfnuð verðtryggðra eigna og skulda viðskiptabanka, sparisjóða og annarra lánastofnana. Fjármálaeftirlitið getur beitt viðskiptabanka, sparisjóði og aðrar lánastofnanir viðurlögum á þann hátt sem fyrir er mælt í lögum um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi ef ekki er farið eftir reglunum.
Þingskjal 948, 125. löggjafarþing 491. mál: vaxtalög (regluheimildir).
Lög nr. 22 14. apríl 2000.
Lög um breytingu á vaxtalögum, nr. 25/1987, með síðari breytingum.
1. gr.
23. gr. laganna orðast svo:Seðlabanki Íslands setur nánari reglur um verðtryggingu sparifjár og lánsfjár.
2. gr.
Á eftir 23. gr. laganna kemur ný grein og breytist greinatala annarra greina samkvæmt því:Fjármálaeftirlitinu er heimilt að setja reglur um jöfnuð verðtryggðra eigna og skulda viðskiptabanka, sparisjóða og annarra lánastofnana. Fjármálaeftirlitið getur beitt viðskiptabanka, sparisjóði og aðrar lánastofnanir viðurlögum á þann hátt sem fyrir er mælt í lögum um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi ef ekki er farið eftir reglunum.
3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 5. apríl 2000.