Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1178, 120. löggjafarþing 445. mál: vörugjald (magngjald o.fl.).
Lög nr. 89 12. júní 1996.
Vörugjald skal reiknað með tvenns konar hætti; annars vegar sem tiltekin fjárhæð fyrir hvert kílógramm eða hvern lítra af gjaldskyldri vöru (magngjald), en hins vegar sem tiltekið hlutfall af verðmæti gjaldskyldrar vöru (verðgjald).
Af vörum, sem flokkast undir tollskrárnúmer sem talin eru upp í A-lið í viðauka I, skal greiða tiltekna fjárhæð fyrir hvert kílógramm af vörunni án umbúða, eftir því sem nánar er kveðið á um í viðaukanum.
Af vörum, sem flokkast undir tollskrárnúmer sem talin eru upp í B-lið í viðauka I, skal greiða tiltekna fjárhæð fyrir hvern lítra af vörunni, eftir því sem nánar er kveðið á um í viðaukanum.
Af vörum, sem flokkast undir tollskrárnúmer sem talin eru upp í C–F-liðum í viðauka I, skal greiða gjald af verðmæti vöru sem hér segir:
Aðilar, sem flytja inn eða kaupa innan lands gjaldskyldar vörur til heildsölu, geta fengið sérstaka skráningu hjá skattstjóra. Skilyrði slíkrar skráningar eru:
Aðila, sem fengið hefur sérstaka skráningu, er heimilt að flytja gjaldskyldar vörur inn til landsins eða kaupa gjaldskyldar vörur innan lands af framleiðanda eða af öðrum sérstaklega skráðum aðila án þess að skylda stofnist til greiðslu vörugjalds, sbr. 4. mgr. 9. gr.
Innlendum framleiðendum og aðilum sem fengið hafa sérstaka skráningu er heimil sala eða afhending á gjaldskyldum vörum án vörugjalds til aðila sem skráðir eru samkvæmt þessari grein.
Þegar aðili, sem fengið hefur sérstaka skráningu, kaupir gjaldskyldar vörur án vörugjalds skal tilgreina á sölureikningum það magn eða það verð sem myndar gjaldstofn vörugjalds.
Gjaldstofn verðgjalds.
Gjaldstofn vörugjalds af innfluttum vörum, sem flokkast undir tollskrárnúmer sem talin eru upp í C–F-liðum í viðauka I, er tollverð þeirra eins og það er ákveðið í 8.–10. gr. tollalaga, að viðbættum tollum eins og þeir eru ákveðnir samkvæmt þeim lögum.
Gjaldstofn vörugjalds af innlendum framleiðsluvörum, sem flokkast undir tollskrárnúmer sem talin eru upp í C–F-liðum í viðauka I, er verksmiðjuverð þeirra.
Verksmiðjuverð er söluverð vöru frá framleiðanda, þ.e. það verð sem kaupandi greiðir eða ber að greiða við kaup á vöru af framleiðanda án frádráttar nokkurs kostnaðar eða þjónustugjalds.
Samsvari verksmiðjuverð ekki heildarandvirði vöru, t.d. vegna þess að kaupandi eða annar framleiðandi leggur til hráefni, efnivörur eða annað verðmæti sem vörugjald hefur ekki þegar verið greitt af, skal heildarandvirði vörunnar teljast gjaldstofn til vörugjalds.
Ef framleiðandi er jafnframt heildsali eða smásali vöru eða ef verksmiðjuverð vöru liggur ekki fyrir af öðrum ástæðum skal gjaldstofn vera almennt gangverð á sömu eða sams konar vöru við sölu frá framleiðendum. Ef slíkt almennt gangverð liggur ekki fyrir skal gjaldstofn vera verksmiðjuverð framleiðanda á sömu eða sams konar vöru í sambærilegum viðskiptum við óháða aðila.
Ef framleiðandi og kaupandi eru háðir hvor öðrum í skilningi 2. mgr. 8. gr. tollalaga er skattyfirvöldum heimilt að ákvarða gjaldstofn samkvæmt ákvæðum 4. mgr. Ríkisskattstjóri skal gefa út reglur um mat til verðs samkvæmt þessari málsgrein.
Tollstjórar skulu reikna vörugjald af gjaldskyldum vörum sem aðilar, aðrir en þeir sem skráðir hafa verið skv. 5. gr., flytja til landsins.
Hvert uppgjörstímabil aðila sem skráðir eru skv. 2. mgr. 4. gr. er tveir mánuðir, desember og janúar, febrúar og mars, apríl og maí, júní og júlí, ágúst og september, október og nóvember. Gjalddagi hvers uppgjörstímabils er 15. dagur annars mánaðar eftir lok þess.
Innflytjendur, sem flytja vörur til landsins til endursölu, aðrir en þeir sem jafnframt eru skráðir skv. 5. gr., skulu eigi síðar en á gjalddaga hvers uppgjörstímabils ótilkvaddir greiða innheimtumanni ríkissjóðs vörugjald af gjaldskyldum vörum sem voru tollafgreiddar á uppgjörstímabilinu. Aðilar, sem flytja gjaldskylda vöru til landsins til eigin nota, skulu greiða vörugjald við tollafgreiðslu.
Innlendir framleiðendur skulu eigi síðar en á gjalddaga hvers uppgjörstímabils ótilkvaddir greiða innheimtumanni ríkissjóðs vörugjald af gjaldskyldum vörum sem voru seldar eða afhentar á tímabilinu. Þó skal ekki greiða vörugjald af vörum sem voru seldar án vörugjalds til skráðra aðila skv. 5. gr.
Aðilar, sem skráðir eru skv. 5. gr., skulu eigi síðar en á gjalddaga hvers uppgjörstímabils ótilkvaddir greiða innheimtumanni ríkissjóðs vörugjald af þeim vörum sem þeir hafa keypt eða fengið tollafgreiddar á tímabilinu eða voru til staðar í birgðum í upphafi uppgjörstímabils en eru ekki til staðar í birgðum við lok uppgjörstímabils samkvæmt birgðabókhaldi. Þó skal hvorki greiða vörugjald af þeim vörum sem vörugjald hefur þegar verið greitt af né af vörum sem voru seldar án vörugjalds til annarra skráðra aðila skv. 5. gr.
Gjaldskyldir aðilar skv. 2. og 3. tölul. 1. mgr. 4. gr. skulu eigi síðar en á gjalddaga hvers uppgjörstímabils skila vörugjaldsskýrslu í því formi sem ríkisskattstjóri ákveður vegna vara sem greiða ber vörugjald af á uppgjörstímabilinu. Jafnframt skal tilgreina í skýrslunni sölu á gjaldskyldum vörum án vörugjalds til aðila sem eru skráðir skv. 5. gr. Skattstjóri skal áætla vörugjald af viðskiptum þeirra aðila sem ekki skila skýrslu innan tilskilins tíma, senda enga skýrslu eða ef skýrslu eða fylgigögnum er ábótavant. Skattstjóri skal tilkynna innheimtumanni og gjaldskyldum aðila um áætlanir og leiðréttingar sem gerðar hafa verið.
Sé vörugjald ekki greitt á tilskildum tíma skal aðili sæta álagi til viðbótar því vörugjaldi sem honum ber að standa skil á. Sama gildir ef vörugjaldsskýrslu hefur ekki verið skilað eða henni er ábótavant og vörugjald því áætlað, nema aðili hafi greitt fyrir gjalddaga vörugjaldsins upphæð er til áætlunar svarar eða gefið fyrir lok kærufrests fullnægjandi skýringu á vafaatriðum. Álag skal vera 1% af þeirri upphæð sem vangreidd er fyrir hvern byrjaðan dag eftir gjalddaga, þó ekki hærra en 10%.
Sé vörugjald ekki greitt innan mánaðar frá gjalddaga skal greiða ríkissjóði dráttarvexti af því sem gjaldfallið er. Um ákvörðun og útreikning dráttarvaxta fer eftir vaxtalögum, nr. 25/1987, með síðari breytingum.
Við skil á vörugjaldi í ríkissjóð er gjaldanda heimilt að draga frá það vörugjald sem hann hefur sannanlega greitt við kaup á hráefni og efnivöru til gjaldskyldrar framleiðslu á viðkomandi uppgjörstímabili, hvort sem varan er seld innan lands með vörugjaldi eða úr landi án vörugjalds.
Sé vörugjald af aðföngum hærra á uppgjörstímabili en vörugjald af sölu skal mismunur endurgreiddur úr ríkissjóði. Hafi vörugjaldsskýrslu verið skilað á tilskildum tíma skal endurgreiðsla fara fram innan 15 daga frá lokum skilafrests.
Heimilt er að kæra álagningu vörugjalds innan 30 daga frá gjalddaga gjaldsins. Kæru skal beint til þess tollstjóra eða þess skattstjóra sem annaðist álagningu gjaldsins. Kæru skal fylgja skriflegur rökstuðningur. Innsend fullnægjandi vörugjaldsskýrsla skal tekin sem kæra þegar um er að ræða áætlanir skv. 5. mgr. 9. gr. Tollstjóri eða skattstjóri skal kveða upp skriflegan rökstuddan úrskurð um kæruna og tilkynna hann í ábyrgðarbréfi innan 30 daga frá lokum kærufrests.
Gjaldskyldur aðili og ríkistollstjóri geta skotið úrskurði tollstjóra skv. 1. mgr. til ríkistollanefndar sem kveður upp fullnaðarúrskurð. Um kærufresti og málsmeðferð fer eftir ákvæðum 101. gr. tollalaga.
Gjaldskyldur aðili og ríkisskattstjóri geta skotið úrskurði skattstjóra skv. 1. mgr. til yfirskattanefndar sem kveður upp fullnaðarúrskurð. Um kærufresti og málsmeðferð fer eftir ákvæðum 2.–7. mgr. 29. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum.
Að því leyti sem eigi er ákveðið í lögum þessum um gjaldskyldu, álagningu, tilhögun bókhalds, eftirlit, viðurlög og aðra framkvæmd varðandi vörugjald skulu gilda, eftir því sem við geta átt, ákvæði tollalaga og laga um virðisaukaskatt.
Viðauki I við lög um vörugjald.
Ákvæði til bráðabirgða.
Allir þeir sem framleiða eða flytja til landsins vöru sem skattskyld er samkvæmt lögum þessum og eru ekki skráðir á vörugjaldsskrá skv. 2. mgr. 4. gr. laganna við gildistöku laga þessara skulu tilkynna innan 15 daga frá því að lög þessi öðlast gildi um rekstur sinn og starfsemi til skattstjóra eða tollstjóra þar sem þeir eiga lögheimili.
Þrátt fyrir ákvæði 8. gr. skal fyrsta uppgjörstímabil vörugjalds samkvæmt lögum þessum vera þrír mánuðir, júlí, ágúst og september 1996.
Þingskjal 1178, 120. löggjafarþing 445. mál: vörugjald (magngjald o.fl.).
Lög nr. 89 12. júní 1996.
Lög um breyting á lögum nr. 97/1987, um vörugjald, með síðari breytingum.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. laganna:- Í stað orðanna „í 3. gr.“ í 1. mgr. kemur: í viðauka I við lög þessi.
- Við 1. mgr. bætist nýr málsliður er orðast svo: Sala á gjaldskyldri vöru til varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli, sbr. lög nr. 110/1951, telst sala úr landi í skilningi laga þessara.
- Orðin „og gilda ákvæði þeirra jafnframt um úrskurðarvald í ágreiningsmálum um tollflokkun vara“ í 2. mgr. falla brott.
2. gr.
3. gr. laganna orðast svo:Vörugjald skal reiknað með tvenns konar hætti; annars vegar sem tiltekin fjárhæð fyrir hvert kílógramm eða hvern lítra af gjaldskyldri vöru (magngjald), en hins vegar sem tiltekið hlutfall af verðmæti gjaldskyldrar vöru (verðgjald).
Af vörum, sem flokkast undir tollskrárnúmer sem talin eru upp í A-lið í viðauka I, skal greiða tiltekna fjárhæð fyrir hvert kílógramm af vörunni án umbúða, eftir því sem nánar er kveðið á um í viðaukanum.
Af vörum, sem flokkast undir tollskrárnúmer sem talin eru upp í B-lið í viðauka I, skal greiða tiltekna fjárhæð fyrir hvern lítra af vörunni, eftir því sem nánar er kveðið á um í viðaukanum.
Af vörum, sem flokkast undir tollskrárnúmer sem talin eru upp í C–F-liðum í viðauka I, skal greiða gjald af verðmæti vöru sem hér segir:
- 15% af vörum sem flokkast undir tollskrárnúmer sem talin eru upp í C-lið.
- 20% af vörum sem flokkast undir tollskrárnúmer sem talin eru upp í D-lið.
- 25% af vörum sem flokkast undir tollskrárnúmer sem talin eru upp í E-lið.
- 30% af vörum sem flokkast undir tollskrárnúmer sem talin eru upp í F-lið.
3. gr.
Eftirfarandi breyting verður á 4. gr. laganna:- 2. málsl. 2. tölul. 1. mgr. fellur brott.
- Við 1. mgr. bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Aðilum sem skráðir hafa verið sérstakri skráningu skv. 5. gr.
- 1. málsl. 2. mgr. orðast svo: Aðilar, sem eru gjaldskyldir skv. 1. mgr., aðrir en þeir sem flytja vörur til landsins til eigin nota, skulu ótilkvaddir og eigi síðar en 15 dögum áður en vörugjaldsskyld starfsemi hefst tilkynna atvinnurekstur sinn eða starfsemi til skráningar hjá skattstjóra þar sem aðilar eiga lögheimili.
4. gr.
Við lögin bætist ný grein sem verður 5. gr. laganna og orðast svo:Aðilar, sem flytja inn eða kaupa innan lands gjaldskyldar vörur til heildsölu, geta fengið sérstaka skráningu hjá skattstjóra. Skilyrði slíkrar skráningar eru:
- Að aðili hafi heildsöluleyfi.
- Að aðili haldi sérstakt birgðabókhald yfir þær vörur sem vegna skráningarinnar lúta sérreglum um uppgjör vörugjalds í samræmi við reglur sem ríkisskattstjóri setur.
Aðila, sem fengið hefur sérstaka skráningu, er heimilt að flytja gjaldskyldar vörur inn til landsins eða kaupa gjaldskyldar vörur innan lands af framleiðanda eða af öðrum sérstaklega skráðum aðila án þess að skylda stofnist til greiðslu vörugjalds, sbr. 4. mgr. 9. gr.
Innlendum framleiðendum og aðilum sem fengið hafa sérstaka skráningu er heimil sala eða afhending á gjaldskyldum vörum án vörugjalds til aðila sem skráðir eru samkvæmt þessari grein.
Þegar aðili, sem fengið hefur sérstaka skráningu, kaupir gjaldskyldar vörur án vörugjalds skal tilgreina á sölureikningum það magn eða það verð sem myndar gjaldstofn vörugjalds.
5. gr.
5. gr. laganna, sem verður 6. gr., ásamt fyrirsögn orðast svo:6. gr.
6. gr. laganna, sem verður 7. gr., orðast svo:Gjaldstofn vörugjalds af innlendum framleiðsluvörum, sem flokkast undir tollskrárnúmer sem talin eru upp í C–F-liðum í viðauka I, er verksmiðjuverð þeirra.
Verksmiðjuverð er söluverð vöru frá framleiðanda, þ.e. það verð sem kaupandi greiðir eða ber að greiða við kaup á vöru af framleiðanda án frádráttar nokkurs kostnaðar eða þjónustugjalds.
Samsvari verksmiðjuverð ekki heildarandvirði vöru, t.d. vegna þess að kaupandi eða annar framleiðandi leggur til hráefni, efnivörur eða annað verðmæti sem vörugjald hefur ekki þegar verið greitt af, skal heildarandvirði vörunnar teljast gjaldstofn til vörugjalds.
Ef framleiðandi er jafnframt heildsali eða smásali vöru eða ef verksmiðjuverð vöru liggur ekki fyrir af öðrum ástæðum skal gjaldstofn vera almennt gangverð á sömu eða sams konar vöru við sölu frá framleiðendum. Ef slíkt almennt gangverð liggur ekki fyrir skal gjaldstofn vera verksmiðjuverð framleiðanda á sömu eða sams konar vöru í sambærilegum viðskiptum við óháða aðila.
Ef framleiðandi og kaupandi eru háðir hvor öðrum í skilningi 2. mgr. 8. gr. tollalaga er skattyfirvöldum heimilt að ákvarða gjaldstofn samkvæmt ákvæðum 4. mgr. Ríkisskattstjóri skal gefa út reglur um mat til verðs samkvæmt þessari málsgrein.
7. gr.
7. gr. laganna, sem verður 8. gr., orðast svo:Tollstjórar skulu reikna vörugjald af gjaldskyldum vörum sem aðilar, aðrir en þeir sem skráðir hafa verið skv. 5. gr., flytja til landsins.
8. gr.
8. gr. laganna, sem verður 9. gr., orðast svo:Hvert uppgjörstímabil aðila sem skráðir eru skv. 2. mgr. 4. gr. er tveir mánuðir, desember og janúar, febrúar og mars, apríl og maí, júní og júlí, ágúst og september, október og nóvember. Gjalddagi hvers uppgjörstímabils er 15. dagur annars mánaðar eftir lok þess.
Innflytjendur, sem flytja vörur til landsins til endursölu, aðrir en þeir sem jafnframt eru skráðir skv. 5. gr., skulu eigi síðar en á gjalddaga hvers uppgjörstímabils ótilkvaddir greiða innheimtumanni ríkissjóðs vörugjald af gjaldskyldum vörum sem voru tollafgreiddar á uppgjörstímabilinu. Aðilar, sem flytja gjaldskylda vöru til landsins til eigin nota, skulu greiða vörugjald við tollafgreiðslu.
Innlendir framleiðendur skulu eigi síðar en á gjalddaga hvers uppgjörstímabils ótilkvaddir greiða innheimtumanni ríkissjóðs vörugjald af gjaldskyldum vörum sem voru seldar eða afhentar á tímabilinu. Þó skal ekki greiða vörugjald af vörum sem voru seldar án vörugjalds til skráðra aðila skv. 5. gr.
Aðilar, sem skráðir eru skv. 5. gr., skulu eigi síðar en á gjalddaga hvers uppgjörstímabils ótilkvaddir greiða innheimtumanni ríkissjóðs vörugjald af þeim vörum sem þeir hafa keypt eða fengið tollafgreiddar á tímabilinu eða voru til staðar í birgðum í upphafi uppgjörstímabils en eru ekki til staðar í birgðum við lok uppgjörstímabils samkvæmt birgðabókhaldi. Þó skal hvorki greiða vörugjald af þeim vörum sem vörugjald hefur þegar verið greitt af né af vörum sem voru seldar án vörugjalds til annarra skráðra aðila skv. 5. gr.
Gjaldskyldir aðilar skv. 2. og 3. tölul. 1. mgr. 4. gr. skulu eigi síðar en á gjalddaga hvers uppgjörstímabils skila vörugjaldsskýrslu í því formi sem ríkisskattstjóri ákveður vegna vara sem greiða ber vörugjald af á uppgjörstímabilinu. Jafnframt skal tilgreina í skýrslunni sölu á gjaldskyldum vörum án vörugjalds til aðila sem eru skráðir skv. 5. gr. Skattstjóri skal áætla vörugjald af viðskiptum þeirra aðila sem ekki skila skýrslu innan tilskilins tíma, senda enga skýrslu eða ef skýrslu eða fylgigögnum er ábótavant. Skattstjóri skal tilkynna innheimtumanni og gjaldskyldum aðila um áætlanir og leiðréttingar sem gerðar hafa verið.
Sé vörugjald ekki greitt á tilskildum tíma skal aðili sæta álagi til viðbótar því vörugjaldi sem honum ber að standa skil á. Sama gildir ef vörugjaldsskýrslu hefur ekki verið skilað eða henni er ábótavant og vörugjald því áætlað, nema aðili hafi greitt fyrir gjalddaga vörugjaldsins upphæð er til áætlunar svarar eða gefið fyrir lok kærufrests fullnægjandi skýringu á vafaatriðum. Álag skal vera 1% af þeirri upphæð sem vangreidd er fyrir hvern byrjaðan dag eftir gjalddaga, þó ekki hærra en 10%.
Sé vörugjald ekki greitt innan mánaðar frá gjalddaga skal greiða ríkissjóði dráttarvexti af því sem gjaldfallið er. Um ákvörðun og útreikning dráttarvaxta fer eftir vaxtalögum, nr. 25/1987, með síðari breytingum.
9. gr.
9. gr. laganna, sem verður 10. gr., orðast svo:Við skil á vörugjaldi í ríkissjóð er gjaldanda heimilt að draga frá það vörugjald sem hann hefur sannanlega greitt við kaup á hráefni og efnivöru til gjaldskyldrar framleiðslu á viðkomandi uppgjörstímabili, hvort sem varan er seld innan lands með vörugjaldi eða úr landi án vörugjalds.
Sé vörugjald af aðföngum hærra á uppgjörstímabili en vörugjald af sölu skal mismunur endurgreiddur úr ríkissjóði. Hafi vörugjaldsskýrslu verið skilað á tilskildum tíma skal endurgreiðsla fara fram innan 15 daga frá lokum skilafrests.
10. gr.
Við lögin bætist ný grein sem verður 11. gr. og orðast svo:Heimilt er að kæra álagningu vörugjalds innan 30 daga frá gjalddaga gjaldsins. Kæru skal beint til þess tollstjóra eða þess skattstjóra sem annaðist álagningu gjaldsins. Kæru skal fylgja skriflegur rökstuðningur. Innsend fullnægjandi vörugjaldsskýrsla skal tekin sem kæra þegar um er að ræða áætlanir skv. 5. mgr. 9. gr. Tollstjóri eða skattstjóri skal kveða upp skriflegan rökstuddan úrskurð um kæruna og tilkynna hann í ábyrgðarbréfi innan 30 daga frá lokum kærufrests.
Gjaldskyldur aðili og ríkistollstjóri geta skotið úrskurði tollstjóra skv. 1. mgr. til ríkistollanefndar sem kveður upp fullnaðarúrskurð. Um kærufresti og málsmeðferð fer eftir ákvæðum 101. gr. tollalaga.
Gjaldskyldur aðili og ríkisskattstjóri geta skotið úrskurði skattstjóra skv. 1. mgr. til yfirskattanefndar sem kveður upp fullnaðarúrskurð. Um kærufresti og málsmeðferð fer eftir ákvæðum 2.–7. mgr. 29. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum.
11. gr.
10. gr. laganna, sem verður 12. gr., orðast svo:Að því leyti sem eigi er ákveðið í lögum þessum um gjaldskyldu, álagningu, tilhögun bókhalds, eftirlit, viðurlög og aðra framkvæmd varðandi vörugjald skulu gilda, eftir því sem við geta átt, ákvæði tollalaga og laga um virðisaukaskatt.
12. gr.
Í stað orðanna „3. gr.“ tvívegis í síðari málslið 1. mgr. 11. gr. laganna, er verður 13. gr. þeirra, kemur: viðauka I.13. gr.
Viðauki við lögin orðast svo:- Af vörum í eftirgreindum tollskrárnúmerum skal greiða í vörugjald krónur fyrir hvert kílógramm af vörunni án umbúða sem hér segir:
Tollskrárnúmer | kr./kg | Tollskrárnúmer | kr./kg | Tollskrárnúmer | kr./kg |
0813.4001 | 80 | 1701.9106 | 30 | 1702.9004 | 30 |
0813.5001 | 80 | 1701.9107 | 30 | 1702.9009 | 30 |
0901.1100 | 28 | 1701.9109 | 30 | 1703.1002 | 30 |
0901.1200 | 28 | 1701.9901 | 30 | 1703.1009 | 30 |
0901.2101 | 35 | 1701.9902 | 30 | 1703.9009 | 30 |
0901.2109 | 35 | 1701.9903 | 30 | 1704.1000 | 65 |
0901.2201 | 35 | 1701.9904 | 30 | 1704.9001 | 65 |
0901.2209 | 35 | 1701.9905 | 30 | 1704.9002 | 65 |
0901.9000 | 35 | 1701.9906 | 30 | 1704.9003 | 65 |
0902.1000 | 35 | 1701.9907 | 30 | 1704.9004 | 65 |
0902.2000 | 35 | 1701.9909 | 30 | 1704.9005 | 65 |
0902.3000 | 35 | 1702.1100 | 30 | 1704.9006 | 65 |
0902.4000 | 35 | 1702.1900 | 30 | 1704.9007 | 65 |
0903.0000 | 35 | 1702.2000 | 30 | 1704.9009 | 65 |
0909.1001 | 80 | 1702.3001 | 30 | 1805.0001 | 15 |
0909.5001 | 80 | 1702.3002 | 30 | 1805.0009 | 15 |
1211.9001 | 80 | 1702.3009 | 30 | 1806.1000 | 65 |
1211.9002 | 80 | 1702.4001 | 30 | 1806.2001 | 65 |
1701.1100 | 30 | 1702.4002 | 30 | 1806.2003 | 65 |
1701.1200 | 30 | 1702.4009 | 30 | 1806.2004 | 65 |
1701.9101 | 30 | 1702.5000 | 30 | 1806.2005 | 65 |
1701.9102 | 30 | 1702.6000 | 30 | 1806.2006 | 65 |
1701.9103 | 30 | 1702.9001 | 30 | 1806.2009 | 65 |
1701.9104 | 30 | 1702.9002 | 30 | 1806.3101 | 65 |
1701.9105 | 30 | 1702.9003 | 30 | 1806.3109 | 65 |
1806.3201 | 65 | 2007.1000 | 12 | 2106.9023 | 80 |
1806.3202 | 65 | 2007.9100 | 12 | 2106.9024 | 80 |
1806.3203 | 65 | 2007.9900 | 12 | 2106.9025 | 80 |
1806.3209 | 65 | 2008.1101 | 12 | 2106.9026 | 80 |
1806.9011 | 15 | 2008.1109 | 12 | 2106.9031 | 25 |
1806.9012 | 15 | 2008.1900 | 12 | 2106.9039 | 80 |
1806.9019 | 15 | 2008.2001 | 12 | 2106.9041 | 25 |
1806.9023 | 65 | 2008.2009 | 12 | 2106.9042 | 25 |
1806.9024 | 65 | 2008.3001 | 12 | 2106.9048 | 25 |
1806.9025 | 65 | 2008.3009 | 12 | 2106.9049 | 25 |
1806.9026 | 65 | 2008.4001 | 12 | 2106.9061 | 65 |
1806.9027 | 65 | 2008.4009 | 12 | 2106.9062 | 12 |
1806.9028 | 65 | 2008.5001 | 12 | 2106.9063 | 30 |
1806.9029 | 65 | 2008.5009 | 12 | 3003.9001 | 65 |
1806.9039 | 65 | 2008.6001 | 12 | 3004.5004 | 65 |
1901.9011 | 15 | 2008.6009 | 12 | 3004.9004 | 65 |
1901.9019 | 15 | 2008.7001 | 12 | 3302.1021 | 65 |
1904.1001 | 40 | 2008.7009 | 12 | 3302.1029 | 65 |
1905.2000 | 40 | 2008.8001 | 12 | 3302.1030 | 65 |
1905.3011 | 40 | 2008.8009 | 12 | 4011.1000 | 20 |
1905.3019 | 40 | 2008.9100 | 12 | 4011.2000 | 20 |
1905.3021 | 40 | 2008.9201 | 12 | 4011.4000 | 20 |
1905.3029 | 40 | 2008.9209 | 12 | 4011.5000 | 20 |
1905.3030 | 40 | 2008.9901 | 12 | 4011.9100 | 20 |
1905.9030 | 20 | 2008.9902 | 12 | 4011.9900 | 20 |
1905.9060 | 20 | 2008.9909 | 12 | 4012.1000 | 20 |
2005.2003 | 20 | 2101.1100 | 80 | 4012.2000 | 20 |
2006.0011 | 12 | 2101.1201 | 80 | 4012.9000 | 20 |
2006.0012 | 12 | 2101.1209 | 80 | 4013.1000 | 20 |
2006.0019 | 12 | 2101.2001 | 80 | 4013.2000 | 20 |
2006.0021 | 12 | 2101.2009 | 80 | 4013.9000 | 20 |
2006.0022 | 12 | 2101.3001 | 80 | 4016.9922 | 20 |
2006.0023 | 12 | 2101.3009 | 80 | 4016.9925 | 20 |
2006.0029 | 12 | 2106.9021 | 400 | ||
2006.0030 | 12 | 2106.9022 | 30 | ||
- Af vörum í eftirgreindum tollskrárnúmerum skal greiða í vörugjald krónur fyrir hvern lítra af vörunni sem hér segir:
Tollskrárnúmer | kr./kg | Tollskrárnúmer | kr./kg | Tollskrárnúmer | kr./kg |
2009.1101 | 9 | 2009.6001 | 9 | 2106.9011 | 9 |
2009.1109 | 9 | 2009.6009 | 9 | 2106.9019 | 9 |
2009.1901 | 9 | 2009.7001 | 9 | 2201.1000 | 9 |
2009.1909 | 9 | 2009.7009 | 9 | 2202.1001 | 9 |
2009.2001 | 9 | 2009.8001 | 9 | 2202.1002 | 9 |
2009.2009 | 9 | 2009.8009 | 9 | 2202.1009 | 9 |
2009.3001 | 9 | 2009.9001 | 9 | 2202.9001 | 9 |
2009.3009 | 9 | 2009.9009 | 9 | 2202.9002 | 9 |
2009.4001 | 9 | 2105.0011 | 9 | 2202.9009 | 9 |
2009.4009 | 9 | 2105.0019 | 9 | 2203.0001 | 9 |
2009.5001 | 9 | 2105.0021 | 9 | 2204.1001 | 9 |
2009.5009 | 9 | 2105.0029 | 9 | 2204.2111 | 9 |
2204.2121 | 9 | 2204.2921 | 9 | 2205.1001 | 9 |
2204.2131 | 9 | 2204.2931 | 9 | 2205.9001 | 9 |
2204.2141 | 9 | 2204.2941 | 9 | 2206.0001 | 9 |
2204.2151 | 9 | 2204.2951 | 9 | 2206.0009 | 9 |
2204.2161 | 9 | 2204.2961 | 9 | 2208.9091 | 9 |
2204.2911 | 9 | 2204.3001 | 9 | 2209.0000 | 9 |
- Af vörum í eftirgreindum tollskrárnúmerum skal greiða 15% vörugjald:
3303.0001 | 3920.2001 | 4411.2101 | 5703.9009 | 7007.1101 |
3303.0002 | 3920.3001 | 4411.2901 | 5704.1000 | 7007.2101 |
3304.1000 | 3920.4101 | 4411.3101 | 5704.9000 | 7009.1000 |
3304.2000 | 3920.4202 | 4411.3901 | 5705.0001 | 7014.0001 |
3304.3000 | 3920.5101 | 4411.9101 | 5705.0009 | 7315.9001 |
3304.9100 | 3920.5901 | 4411.9901 | 5805.0000 | 7320.1000 |
3304.9900 | 3920.6101 | 4412.1301 | 5904.1000 | 7320.2001 |
3305.2000 | 3920.6201 | 4412.1401 | 5904.9100 | 7320.9001 |
3305.3000 | 3920.6301 | 4412.1901 | 5904.9200 | 7324.1000 |
3305.9000 | 3920.6901 | 4412.2201 | 6702.1000 | 7324.2100 |
3307.1000 | 3920.7101 | 4412.2301 | 6702.9000 | 7324.2900 |
3307.2000 | 3920.7301 | 4412.2901 | 6802.1000 | 7324.9000 |
3307.3000 | 3920.7901 | 4412.9201 | 6802.2109 | 7417.0000 |
3307.4100 | 3920.9101 | 4412.9301 | 6802.2209 | 7418.2000 |
3307.4900 | 3920.9401 | 4412.9901 | 6802.2309 | 7419.9904 |
3307.9002 | 3920.9902 | 4413.0001 | 6802.2909 | 7615.2000 |
3307.9009 | 3922.1000 | 4418.3000 | 6802.9109 | 8301.2000 |
3701.2000 | 3922.2000 | 4504.1002 | 6802.9209 | 8301.4001 |
3701.9109 | 3922.9001 | 4601.2000 | 6802.9309 | 8302.1001 |
3701.9909 | 3922.9009 | 4815.0000 | 6802.9909 | 8302.3000 |
3702.2000 | 3925.9002 | 5602.9001 | 6803.0000 | 8302.4901 |
3702.3100 | 3926.3001 | 5701.1000 | 6806.2000 | 8407.3100 |
3702.3200 | 4003.0001 | 5701.9000 | 6806.9001 | 8407.3200 |
3702.3909 | 4008.1101 | 5702.1000 | 6806.9009 | 8407.3300 |
3702.4402 | 4008.2101 | 5702.2000 | 6807.1001 | 8407.3400 |
3702.5100 | 4016.9100 | 5702.3100 | 6807.9001 | 8408.2000 |
3702.5200 | 4016.9918 | 5702.3200 | 6808.0000 | 8426.1201 |
3702.5300 | 4016.9919 | 5702.3900 | 6809.1101 | 8426.1209 |
3702.5400 | 4016.9925 | 5702.4100 | 6809.1901 | 8426.1900 |
3702.5500 | 4407.1001 | 5702.4200 | 6809.9001 | 8426.2000 |
3702.5600 | 4407.2401 | 5702.4900 | 6809.9009 | 8426.3000 |
3702.9100 | 4407.2501 | 5702.5100 | 6811.2001 | 8426.4101 |
3702.9200 | 4407.2601 | 5702.5200 | 6811.9001 | 8426.4109 |
3702.9300 | 4407.2901 | 5702.5900 | 6811.9009 | 8426.4900 |
3702.9400 | 4407.9101 | 5702.9100 | 6814.1000 | 8426.9100 |
3702.9500 | 4407.9201 | 5702.9200 | 6904.9000 | 8426.9900 |
3918.1001 | 4407.9901 | 5702.9900 | 6905.1000 | 8428.1001 |
3918.1002 | 4409.1001 | 5703.1001 | 6905.9000 | 8428.4000 |
3918.9011 | 4409.2001 | 5703.1009 | 6907.1000 | 8431.3100 |
3918.9019 | 4410.1101 | 5703.2001 | 6907.9000 | 8481.1000 |
3918.9021 | 4410.1901 | 5703.2009 | 6908.1000 | 8481.2000 |
3918.9029 | 4410.9001 | 5703.3001 | 6908.9000 | 8481.3000 |
3919.9010 | 4411.1101 | 5703.3009 | 6910.1000 | 8481.4000 |
3920.1002 | 4411.1901 | 5703.9001 | 6910.9000 | 8481.8000 |
8481.9000 | 8536.5000 | 8540.1100 | 8544.4900 | 9405.2001 |
8507.1000 | 8536.6100 | 8540.1200 | 8544.5100 | 9405.2009 |
8507.2000 | 8536.6900 | 8540.2000 | 8544.5900 | 9405.3000 |
8507.3009 | 8536.9000 | 8540.4000 | 8544.6000 | 9405.4001 |
8507.4000 | 8537.1009 | 8540.5000 | 8544.7000 | 9405.4009 |
8507.8000 | 8537.2000 | 8540.6000 | 8714.1100 | 9405.5000 |
8507.9000 | 8538.1000 | 8540.7100 | 8714.1900 | 9405.6001 |
8535.1000 | 8538.9000 | 8540.7200 | 8716.8001 | 9405.6009 |
8535.2100 | 8539.1000 | 8540.7900 | 8716.8009 | 9405.9101 |
8535.2900 | 8539.2100 | 8540.8100 | 8716.9009 | 9405.9109 |
8535.3000 | 8539.2200 | 8540.8900 | 9007.1100 | 9405.9201 |
8535.4000 | 8539.2900 | 8540.9100 | 9007.1900 | 9405.9202 |
8535.9000 | 8539.3100 | 8540.9900 | 9007.2001 | 9405.9209 |
8536.1000 | 8539.3200 | 8544.1100 | 9007.2009 | 9405.9910 |
8536.2000 | 8539.3900 | 8544.1900 | 9007.9100 | 9405.9921 |
8536.3000 | 8539.4100 | 8544.2009 | 9007.9200 | 9405.9929 |
8536.4100 | 8539.4900 | 8544.3000 | 9405.1001 | |
8536.4900 | 8539.9000 | 8544.4100 | 9405.1009 | |
- Af vörum í eftirgreindum tollskrárnúmerum skal greiða 20% vörugjald:
7321.1100 | 8421.1201 | 8476.8900 | 8516.7901 | 8708.9300 |
7321.1200 | 8421.3901 | 8476.9000 | 8516.7909 | 8708.9400 |
7321.1300 | 8422.1100 | 8479.6001 | 8516.8001 | 8708.9900 |
7321.8100 | 8433.1100 | 8479.8901 | 8544.3000 | 9608.1000 |
7321.8200 | 8433.1900 | 8511.1000 | 8545.9001 | 9608.2000 |
7321.8300 | 8450.1100 | 8511.2000 | 8708.1000 | 9608.3100 |
7321.9000 | 8450.1200 | 8511.3000 | 8708.2900 | 9608.3900 |
8418.1001 | 8450.1900 | 8511.4000 | 8708.3100 | 9608.4000 |
8418.2100 | 8450.9000 | 8511.5000 | 8708.3900 | 9608.5000 |
8418.2200 | 8451.1009 | 8511.8000 | 8708.4000 | 9608.6000 |
8418.2900 | 8451.2100 | 8511.9000 | 8708.5000 | 9608.9100 |
8418.3001 | 8451.3001 | 8516.5000 | 8708.6000 | 9608.9900 |
8418.4001 | 8476.2100 | 8516.6001 | 8708.7000 | 9609.1000 |
8418.6101 | 8476.2900 | 8516.6002 | 8708.8000 | 9609.2000 |
8418.6901 | 8476.8100 | 8516.6009 | 8708.9100 | 9609.9000 |
- Af vörum í eftirgreindum tollskrárnúmerum skal greiða 25% vörugjald:
8517.1901 | 8518.9000 | 8519.9200 | 8520.3200 | 8521.9021 |
8518.2109 | 8519.1000 | 8519.9300 | 8520.3300 | 8521.9029 |
8518.2209 | 8519.2100 | 8519.9901 | 8520.3900 | 8522.1000 |
8518.2900 | 8519.2900 | 8519.9902 | 8520.9001 | 8522.9000 |
8518.3000 | 8519.3100 | 8519.9909 | 8520.9009 | |
8518.4009 | 8519.3900 | 8520.1000 | 8521.1021 | |
8518.5009 | 8519.4000 | 8520.2000 | 8521.1029 | |
- Af vörum í eftirgreindum tollskrárnúmerum skal greiða 30% vörugjald:
8527.1201 | 8527.2101 | 8527.3109 | 8528.1302 | 8529.9009 |
8527.1209 | 8527.2102 | 8527.3200 | 8528.1309 | 8543.8001 |
8527.1301 | 8527.2109 | 8527.3900 | 8528.2109 | 8543.8901 |
8527.1302 | 8527.2900 | 8527.9009 | 8528.2209 | 8543.9001 |
8527.1309 | 8527.3101 | 8528.1202 | 8528.3009 | 9301.0000 |
8527.1900 | 8527.3102 | 8528.1209 | 8529.1009 | 9302.0000 |
9303.1000 | 9303.9009 | 9305.2100 | 9306.1000 | 9306.3009 |
9303.2000 | 9304.0000 | 9305.2900 | 9306.2100 | 9306.9009 |
9303.3000 | 9305.1000 | 9305.9000 | 9306.2900 | 9307.0000 |
14. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 1996. Ákvæði þeirra skulu taka til allra vara sem þá eru ótollafgreiddar, þó ekki vara sem afhentar hafa verið með bráðabirgðatollafgreiðslu.Þrátt fyrir ákvæði 8. gr. skal fyrsta uppgjörstímabil vörugjalds samkvæmt lögum þessum vera þrír mánuðir, júlí, ágúst og september 1996.
Samþykkt á Alþingi 4. júní 1996.