Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 676, 133. löggjafarþing 302. mál: ársreikningar (vanskil á ársreikningi).
Lög nr. 160 15. desember 2006.
Ef stjórnarmenn eða framkvæmdastjórar félaga, sem falla undir 1. tölul., 2. tölul. eða 2. málsl. 4. tölul. 1. gr., vanrækja að semja ársreikning eða samstæðureikning er lög þessi kveða á um eða vanrækja að standa skil á ársreikningi eða samstæðureikningi til opinberrar birtingar, telst sú háttsemi vera meiri háttar brot gegn lögunum.
Ef stjórnarmenn eða framkvæmdastjórar félaga skv. 1. gr. rangfæra ársreikning, samstæðureikning eða einstaka hluta þeirra, byggja ekki samningu þeirra á niðurstöðu bókhalds eða láta rangar eða villandi skýringar fylgja, enda varði brotið ekki við 158. gr. almennra hegningarlaga, telst sú háttsemi vera meiri háttar brot gegn lögunum.
Sama á við ef maður aðstoðar stjórnarmenn eða framkvæmdastjóra félaga við þau brot sem lýst er í þessari grein eða stuðlar að þeim á annan hátt.
Ef stjórnarmenn eða framkvæmdastjórar félaga, sem falla undir 3. tölul. eða 1. málsl. 4. tölul. 1. gr., vanrækja að semja ársreikning eða samstæðureikning er lög þessi kveða á um, telst sú háttsemi vera brot gegn lögum þessum.
Þingskjal 676, 133. löggjafarþing 302. mál: ársreikningar (vanskil á ársreikningi).
Lög nr. 160 15. desember 2006.
Lög um breyting á lögum nr. 3/2006, um ársreikninga.
1. gr.
121. gr. laganna orðast svo:Ef stjórnarmenn eða framkvæmdastjórar félaga, sem falla undir 1. tölul., 2. tölul. eða 2. málsl. 4. tölul. 1. gr., vanrækja að semja ársreikning eða samstæðureikning er lög þessi kveða á um eða vanrækja að standa skil á ársreikningi eða samstæðureikningi til opinberrar birtingar, telst sú háttsemi vera meiri háttar brot gegn lögunum.
Ef stjórnarmenn eða framkvæmdastjórar félaga skv. 1. gr. rangfæra ársreikning, samstæðureikning eða einstaka hluta þeirra, byggja ekki samningu þeirra á niðurstöðu bókhalds eða láta rangar eða villandi skýringar fylgja, enda varði brotið ekki við 158. gr. almennra hegningarlaga, telst sú háttsemi vera meiri háttar brot gegn lögunum.
Sama á við ef maður aðstoðar stjórnarmenn eða framkvæmdastjóra félaga við þau brot sem lýst er í þessari grein eða stuðlar að þeim á annan hátt.
2. gr.
Á eftir 1. mgr. 122. gr. laganna kemur ný málsgrein, svohljóðandi:Ef stjórnarmenn eða framkvæmdastjórar félaga, sem falla undir 3. tölul. eða 1. málsl. 4. tölul. 1. gr., vanrækja að semja ársreikning eða samstæðureikning er lög þessi kveða á um, telst sú háttsemi vera brot gegn lögum þessum.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 126. gr. laganna:- Á eftir orðunum „skv. 1. mgr.“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur: sbr. þó 3. mgr.
- Á eftir 2. mgr. koma tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
Fjármálaráðherra skal setja reglugerð um nánari framkvæmd á sektarheimild ársreikningaskrár.
4. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi og skulu gilda fyrir hvert það reikningsár sem hefst 1. janúar 2006 eða síðar.Samþykkt á Alþingi 9. desember 2006.