Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 824, 118. löggjafarþing 236. mál: tryggingagjald (sérstakur gjaldflokkur).
Lög nr. 32 6. mars 1995.
Vegna tryggingagjalds á reiknað endurgjald manns sem stundar atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi, maka hans og barna skal stofn gjaldsins vera sú fjárhæð sem greinir í 3. mgr. 6. gr. Er ekki skylt að gera sérstaka grein fyrir fjárhæðinni á launaframtali. Skipta skal gjaldstofni ársins jafnt á öll geiðslutímabil þess nema önnur skipting komi greinilega fram í skattgögnum gjaldanda.
Viðauki I.
Í sérstökum gjaldflokki tryggingagjalds skulu vera eftirtaldar atvinnugreinar samkvæmt atvinnugreinaflokkun Hagstofu Íslands:
Þingskjal 824, 118. löggjafarþing 236. mál: tryggingagjald (sérstakur gjaldflokkur).
Lög nr. 32 6. mars 1995.
Lög um breyting á lögum nr. 113/1990, um tryggingagjald, með síðari breytingum.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verði á 2. gr. laganna, sbr. 43. gr. laga nr. 111/1992, 34. gr. laga nr. 122/1993 og 1. gr. laga nr. 74/1994:- Í stað hlutfallstölunnar „3%“ í 1. mgr. komi: 3,05%.
- 2. mgr. orðast svo:
2. gr.
3. mgr. 12. gr. laganna, sbr. 37. gr. laga nr. 122/1993, orðast svo:Vegna tryggingagjalds á reiknað endurgjald manns sem stundar atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi, maka hans og barna skal stofn gjaldsins vera sú fjárhæð sem greinir í 3. mgr. 6. gr. Er ekki skylt að gera sérstaka grein fyrir fjárhæðinni á launaframtali. Skipta skal gjaldstofni ársins jafnt á öll geiðslutímabil þess nema önnur skipting komi greinilega fram í skattgögnum gjaldanda.
3. gr.
Við lögin bætist svofelldur Viðauki I sem orðast svo ásamt fyrirsögn:01.1 | Jarðyrkja og garðyrkja. |
01.2 | Búfjárrækt. |
01.3 | Blandaður búskapur jarðyrkju og búfjárræktar. |
01.5 | Dýraveiðar og tengd þjónusta. |
02 | Skógrækt, skógarhögg og tengd þjónusta. |
05.01 | Fiskveiðar. |
05.02 | Rekstur seiða-, fiskeldis- og hafbeitarstöðva. |
10 | Kolanám og móvinnsla. |
11 | Vinnsla á hráolíu, jarðgasi o.fl. |
12 | Nám á úran- og þórínmálmgrýti. |
13 | Málmnám og málmvinnsla. |
14 | Námugröftur og vinnsla annarra hráefna úr jörðu. |
15 | Matvæla- og drykkjarvöruiðnaður. |
16 | Tóbaksiðnaður. |
17 | Textíliðnaður. |
18 | Fataiðnaður; sútun og litun loðskinna. |
19 | Leðuriðnaður. |
20 | Trjáiðnaður. |
21 | Pappírsiðnaður. |
22 | Útgáfustarfsemi og prentiðnaður. |
23 | Framleiðsla á koxi, olíuvörum og kjarnorkueldsneyti. |
24 | Efnaiðnaður. |
25 | Gúmmí- og plastvöruframleiðsla. |
26 | Gler-, leir- og steinefnaiðnaður. |
27 | Framleiðsla málma. |
28 | Málmsmíði og viðgerðir. |
29 | Vélsmíði og vélaviðgerðir. |
30 | Framleiðsla á skrifstofuvélum og tölvum. |
31 | Framleiðsla og viðgerðir annarra ótalinna rafmagnsvéla og -tækja. |
32 | Framleiðsla fjarskiptabúnaðar og -tækja. |
33 | Framleiðsla á lækningatækjum, mæli- og rannsóknartækjum, úrum o.fl. |
34 | Framleiðsla vélknúinna ökutækja annarra en vélhjóla. |
35 | Framleiðsla annarra farartækja. |
36 | Húsgagnaiðnaður, skartgripasmíði, hljóðfærasmíði, sportvörugerð, leikfangagerð og annar ótalinn iðnaður. |
37 | Endurvinnsla. |
52.7 | Viðgerðir á hlutum til einkanota og heimilisnota. |
55.1 | Hótel. |
55.2 | Orlofshús, bændagisting, tjaldstæði og önnur aðstaða til stuttrar dvalar. |
55.3 | Veitingahúsarekstur. |
55.52 | Sala á tilbúnum mat. |
71.1 | Bílaleiga. |
72.2 | Hugbúnaðargerð. Ráðgjöf og sala á hugbúnaði fellur ekki hér undir. |
92.11 | Framleiðsla kvikmynda og myndbanda. |
4. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. apríl 1995 og koma til framkvæmda við staðgreiðslu tryggingagjalds frá þeim tíma og við álagningu tryggingagjalds á árinu 1996 á gjaldstofn ársins 1995. Þó skal 2. gr. gilda um skil launaframtala frá og með árinu 1995.Samþykkt á Alþingi 24. febrúar 1995.