Ásta R. Jóhannesdóttir (andsvar):
Herra forseti. Það er greinilegt að okkur greinir á um þetta efni, en það á auðvitað eftir að samþykkja það hér á þingi eftir umræður hvort ákveðið verður að skipa í ráðið eftir styrkleikahlutföllum flokka. Mér finnst það nú heldur djúpt í árinni tekið að vestnorræna samstarfið leggist af ef styrkleikahlutföll í þinginu ráða því ekki hverjir sitja í ráðinu. Ég skil ekkert í því að þetta samstarf skuli hafa bara yfirleitt gengið hingað til því að ekki hefur sá háttur verið hafður á hingað til í þessum efnum.