Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson):
Herra forseti. Það er rétt að nú er Framkvæmdasjóður einungis eða næstum einungis notaður til framkvæmda og þar af leiðir að við sækjum ekki peninga í hann til að bregðast við í þessu tilfelli. En við munum, eins og ég sagði áðan, leita leiða til þess að koma til aðstoðar eftir því sem okkur er unnt.