Vegáætlun 1997 og 1998

Fimmtudaginn 15. maí 1997, kl. 20:03:55 (6685)

1997-05-15 20:03:55# 121. lþ. 127.12 fundur 309. mál: #A vegáætlun 1997 og 1998# þál., Forseti GÁS
[prenta uppsett í dálka] 127. fundur

[20:03]

Forseti (Guðmundur Árni Stefánsson) :

Forseti vill geta þess vegna þeirrar umræðu sem hér hefur átt sér stað að það er hárrétt að við það var miðað að fundi lyki kl. 19. Forseti hafði hins vegar vonast til þess að hægt yrði að ljúka síðari umr. um vegáætlun og ýmislegt bendir í þá áttina. Hins vegar er fyrirliggjandi að tveir hv. þingmenn eru á mælendaskrá þannig að það er einsýnt að það tekst ekki. Forseti mun því verða við þessum óskum og fresta umræðunni.